miðvikudagur, nóvember 28, 2007



"Vertu súkkulaðisnúður" komin í verslanir

Sykursnúðsglassúrpungurinn Þorgrímur Þráinsson er búin að gefa út sjálfshjálparbók fyrir karlmenn á aldrinum 18 til 88 ára. Bókin heitir "Vertu súkkulaðisnúður" og er gefin út af forlaginu Algjört Krútt. Þorgrímur sagði í stuttu spjalli við Sósa í gegnum símtæki, að hann hefði gengið með þess hugmynd í pungnum í um 20 ár eða allt frá því að hann kynntist rjómasúkkulaði kellingunni sinni á skólaballi í Versló. "Okkur karlpeningnum hefur vantað svona bók í mörg ár og því kýldi ég bara á það sjálfur að skrifa hana. Karlmenn á Íslandi eru alltof röff og ekki nógu töff að mínu viti og mér fannst komin tími til að sykursnúða þá aðeins til" sagði Þorgrímur og hristi til sveittan makkann svo skein í súkkulaði húðaða bringuna. "Er ekki allt í lagi með þig" sagði Sósi þá við sykurpunginn og lét skína í mjallhvíta gervitönnina á móti. Sykurhúðaði ástarpungurinn gaf síðan Sósa eintak af bókinni áður en hann var rokinn í ræktina að "tékka á kellingum" eins og hann orðaði það.
Fyrsta plata Luxor komin í búðir

Fyrsta plata hljómsveitarinnar Luxor sem er afsprengi hins íturvaxna mallakúts Einars Bárðarsonar er nú loks komin í búðir. Þessari plötu sykursnúðanna í Luxor hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og mörg veðmál í gangi um hvursu léleg hún yrði. Sósi setti plötuna í spilarann í dag og heldur því fram að þarna sé komin fram á sjónarsviðið ein misheppnaðasta plata hjá einni misheppnuðustu hljómsveit allra tíma. Það eina sem er í lagi á plötunni er umslagið, en það var einmitt Sósi sem hannaði það.

þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Ægir geðillskan uppmáluð

Sósi hitti Ægir á dögunum þar sem hann ráfaði um úfinn og illa til reika með reiðhjól á bakinu um mýrina í Skerjafirði. Sósa lék forvitni á að vita hvert hann væri að fara og hvaðan hann væri að koma og spurði því kauða beint út, "Hvert ertu að fara og hvaðan ertu að koma?". "Kemur þér ekki við fíflið þitt" hreytti þá kauði út úr sér og gaf Sósa illt auga, klóraði sér í rassinum og hélt sína leið með 10 gíra spítthjól á bakinu. Hvaða geðillska er þetta í nýgiftum manninum?
Otto með einn ískaldann

"Nei, ég gerði ekki neitt um helgina, var frekar slakur. Fékk mér reyndar einn á laugardaginn, thats it" sagði Otto við Sósa er þeir urðu samferða í lyftu í Domus Medica á dögunum.
Það er eitthvað svo rangt við þessa mynd en að sama skapi eitthvað svo ofboðslega kósí.
Bjarki's photoshoot

Sósi náði að telja Bjarka á að koma í myndatöku til þess að auglýsa nýjustu pelsana frá Guðgeiri feldskera með því að lofa honum nýjum pels upp í ermina. Bjarki settu þó fram þær kröfur að hann fengi að vera í háhæluðum og með sítt að aftan (guð má vita af hverju).
Hér til hliðar sjáum við auglýsinguna eins og hún mun birtast í blöðum.
Úr takkaskóm í pels

Sparktuðruathafnamennirnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir fengu sér nýja pelsa á dögunum í tilefnu af útkomu nýjustu bókar þeirra félaga sem ber nafnið "'Úr takkaskóm í pels". Útgáfu bókarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda ekki á hverjum degi sem nauðaskollóttir tvíburar frá Akranesi gefa út bók saman og það um fótbolta og pelsa. "Oh.. þeir eru svo krúttlegir og snúllulegir eitthvað" sagði Vala Matt við Sósa.is er leitað var eftir áliti bleiku dýfunnar um nýju pelsanna sem þeir bræður spranga nú um götur bæjarins í. Arnar og Bjarki vildu ekki koma í viðtal hjá Sósa en vildu koma því á framfæri að þessir pelsar væru rándýrir og ekki fyrir neinn meðal Jón að fjárfesta í.

fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Sósinn komin með I-Phone!

Dabbi Magg fær síðbúna Jólagjöf

Davíð Magnússyni brá heldur betur í brún á dögunum þegar starfsmaður Póstsins birtist á tröppunum hjá honum með forláta pakkaskrifli í höndunum. Davíð sem átti ekki von á neinum pakka spurði því Póstburðarkvikindið hvurju sætti og fékk þau svör að þetta væri pakki sem hefði lent á milli þilja fyrir um 30 árum síðan og hefði verið að koma í leitirnar. Er Dabbi opnaði pakkann kom í ljós fagur rauður sleði með silfruðum meiðum sem skein á í sólskyninu. "Þetta er alveg eins sleði og ég bað um í jólagjöf þegar ég var 7 ára" öskraði Dabbi víst upp fyrir sig og færðist allur í aukana. "Prófaðu hann maður" sagði pósburðardrengurinn þá og lét Davíð ekki segja sér það tvisvar, skellti á sig hjálmnum og brunaði um iðagrænan túnfótinn það sem eftirlifði dags sér, póstfíflinu og öðrum til mikillar skemmtunar.
Olivier með ankannanlegan sjúkdóm

Ólífer mágur Sósa Sig var greindur á dögunum með sjúkdóminn "unstoppoloppopus heightolosys" sem er einn af fágæddustu sjúkdómum sem fyrirfinnast í heiminum. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að manneskjur byrja skyndilega að stækka óeðlilega mikið á miðjum aldri og virðast lítil takmörk fyrir því hvað þetta fólk getur stækkað mikið. Einungis er vitað um eitt annað skráð tilfelli, en það greindist á Indlandi fyrir um 400 árum síðan, sá aðili dó úr súrefnisleysi enda komin vel á annað þúsund metra kallinn. Ólífer er nú þegar orðin 2,40 eftir aðeins örfáa daga sem er samkvæmt kokkabókum Sósa allsendis óeðlilegt. Hér sést Ólífer ásamt vini sínum Lúsífer á fjórðungssjúkrahúsinu í Mónakó þar sem þeir voru við mælingar.
(meira andskotans bullið alltaf hreint)
Kalli glímukóngur á ný

Karl Ægir Karlsson svefnprófessor úr Reykjavík, kom sá og sigraði á árlegu glímumóti sem haldið var í Þorlákshöfn síðastliðna helgi. Karl hafði mikla yfirburði á mótinu og hreinlega saltaði alla andstæðinga sína niður í tunnu og dró þá eins og slý upp um alla veggi. Í samtali við Karl þá vildi hann þakka spúsu sinni Elsu Jó Man þennan frábæra árangur, en hún átti drjúgan þátt í því að Karl náði að bæta á sig einum 70 kílóum fyrir mótið.

Palli fær sér nýjar varpstöðvar

Hinn aldni en snoppufríði Páll Valsari, hefur fjárfest í nýjum varpstöðvum til brúks í spánýjum höfuðstöðvum sínum sem eru til húsa í JL höllinni vestur í bæ. Í stuttu samtali við Pál, þá sagði hann að þær varpstöðvar sem fyrir voru í húsnæðinu, hefðu ekki verið hundi á sigandi og hann hefði því tekið málin í sínar hendur og einhent nokkrum þúsurum úr djúpri pyngju sinni og splæst í eitt stykki tojara, svo hann og hinir akademísku fræðispekúlantar sem deila með honum húsnæði gætu verpt með reisn að nýju. Dröbban aðstoðaði Pál við að selflytja tojarann úr Húsamiðjunni, og ekki er annað að sjá en að það hafi verið hin mesta skemmtun.

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Svenni búin að ná gelti í Póllandi

Sveinberg Gíslason oftast kallaður Lax-1 fór til villisvínaveiða í Póllandi í síðustu viku ásamt fríðu föruneyti. Ekkert hefur spurst til Svenna og félaga fyrr en nú, en Svenni hafði samband við Sósa nú í morgun og tjáði honum að allt gengi vonum framar og veiðin væri betri en engin. Svenni hefur til þessa skotið stærsta göltin og hér til hliðar ber að líta Svenna og bráðina (það er svipur með þeim).

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Elli græðir á tá og fingri

Elías Óskar græðir nú sem aldrei fyrr og situr nú heima og telur seðla út í eitt. Elías sem varð næstum gjaldþrota um daginn og þurfti að selja allt sitt hafurtask til þess að eiga í sig og á hefur nú snúið við blaðinu og hefur með ótrúlegri þolinmæði náð að snúa taflinu sér í hag. Elli gerði víst góðan díl á bréfum í fyrirtæki sem ekki má nefna og hafa þau bréf ávaxtað sig með ógnarhraða síðustu vikur. Sósi tók þessa mynd af Ella á skrifstofu hans í Skaftahlíðinni þar sem hann fór með gamanmál og útdeildi dollurum til velunnara sinna hægri vinstri.

Otto Tynes í heimsókn hjá fjarskyldum ættingjum

Otto komst að því fyrir skömmu, er hann var fyrir rælni að skoða Íslendingabók, að hann á ættir að rekja til Kentucky sýslu í Bandaríkjunum. Hann ákvað því að renna vestur og banka uppá hjá frændfólki sínu. Þessi mynd var tekin viku eftir að hann hitti ættingjana í fyrsta skipti. "Mér leið eins og ég hefði alltaf átt heima þarna" sagði Otto við staðarblaðið Kentucky Post í stuttu viðtali um lífið og tilveruna. Otto er ekki enn komin tilbaka og fólkið á götunnu er farið að tala um að hann komi aldrei tilbaka aftur.

... helgin endaði síðan með því að hann lét pússa sig saman við draugfulla druslu úr Sandgerði hjá bæjarfógetanum í því ágæta sveitarfélagi.
....náði sér að sjálfsögðu í kellingu
...stal síðan vörubíl fullum af bjór og velti honum að sjálfsögðu. Hann lét það þó ekki stoppa sig í að fá sér einn kaldann á kanntinum.
... hann fór síðan í partý þar sem hann lét skjóta rakettu upp úr rassaborunnu á sér (geri aðrir betur)
Dabbi Magg skemmtir sér sem aldrei fyrr

Dabbi Magg tóka svera pakkann á það þegar hann fór út að skemmta sér um síðustu helgi og fór hamförum í allskyns gríni og fíflalátum. Öldruð kona í vesturbænum tók þessa mynd á laugaragsmorgun af kauða er hann renndi sér á sprellanum í ísilagðri rennibraut, næstum nakinn. Hann hafði þó séð sóma sinn í því að setja dýrið í sokk er hann tók salibununa.
Jórunn í kelerísstandi á Snæfellsnesi

Sósa voru rétt í þessu að berast þær fréttir til eyrna að Jórunn norðursins eða Jóka Lomm eins og hún er oftast kölluð, hefði laumas í skjóli nætur á Hótel Búðir um síðustu í helgi í slagtogi við alræmdan glaumgosa frá Þorlákshöfn. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá áttu Jóka og gosinn ánægjulega helgi og fóru víst oft í sleik.
Þessi mynd náðist af parinu í fjöruborðinu á Búðum þar sem þau voru gómuð í miklum sleik svo skein í bleika góma.
Annars er það að frétta af Jókunni að hún unnir hag sínum vel á Seltjarnarnesi og þar er víst stöðugt fjör á bænum.

föstudagur, nóvember 09, 2007

Heimsfrægur svefnprófessor leysir töfrateninginn á innan við mínútu

Svefnprófessorinn Karl Ægir Karlsson hefur sett sér það markmið að slá heimsmetið í að klára töfrateninginn á sem skemstum tíma, en metið er 37 sekúndur og var sett í síðustu viku af einhverjum Indverjaskratta. Karl Ægir sem hefur átt erfitt með svefn upp á síðkastið, notar nú hverja lausa mínútu til þess að æfa færni sína í lausn töfrateningsins. "Ég held ég hafi ekki sofið svona lítið í mörg ár" sagði Kalli er Sósi setti sig í samband við hann mjög svo undrandi á þessu nýja uppátæki kauða.

Elsa Yeoman ekki litið betur út í mörg ár!
Það hreinlega geislar af Elsu þessa dagana enda byrjuð í nýrri vinnu og nýkomin frá Amerkíku þar sem hún og hennar ektamaður spókuðu sig í sólinni í nokkra daga. Elsa sendi þessa mynd á Sósi.is þar sem hún er stödd við einhverja tjörn í Ohio, takið eftir öndinni vinstra megin á myndinni.
Ingibjörg Sólrún ekki litið jafn vel út í mörg ár

Sósa barst það til eyrna á dögunum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði farið í yfirhalningu og ekki litið betur út í mörg ár, dæmi hver fyrir sig.


fimmtudagur, nóvember 08, 2007

Sósi og Lomma auglýsa eyrnamerg fyrir flasskubb

Kaupsýslumaður kom að máli við Sósa og Lommu þegar þau voru á bæjarrölti í Barcelona um helgina og spurði hvort ekki væri hægt að plata þau í að sitja fyrir í einni auglýsingu eða svo fyrir eina flösku. Sósa og frú fannst það nú ekkert tiltökumál og slógu því til enda ekki á hverjum degi sem maður fær flösku hálf gefins. Er myndatökunni lauk vildu þau skötuhjú að sjálfsögðu fá laun erfiðis síns, og rukkuðu því kaupsýslumanninn um flöskuna. Kaupsýslumaðurinn tók vel í það, seildist ofan í vasa sinn og tók þar upp forláta flasskubb (átekinn) og rétti þeim skötuhjúum skellihlæjandi. Sósa og Lommu fannst þau svikinn af þessum viðskiptum en gátu svo sem ekkert gert til þess að rétta sinn hlut enda um munnlegan samning að ræða. Myndin að ofan er ein af þeim myndum sem birtast munu af parinu í erlendum glanstímaritum á næstunni.





Siggi Atla búin að missa það?

Sigurður Atlason Strandamaður og stórvinur Sósa sendi þessa mynd af sjálfum sér á dögunum, þar sem hann er staddur á einhverjum bar í Budapest. Sósa lék forvitni á að vita í hverju hann væri á myndinni og af hverju í andsk... hann væri í þessum ófögnuði. "Ég var náttúrulega rændur eina ferðina enn og átti því ekki í önnur föt að venda. Þetta dress fékk ég fyrir 10 slikk hjá götusala og var ég hæstánægður með þau kaup. Ég fékk óskipta athygli kvennpeningsins í þessu dressi og var meira að segja boðið upp á bjór af karlmanni, þannig að ég get ekki kvartað" sagði Siggi í stuttu samtali er Sósi sló á þráðinn til Budapest á dögunum. Siggi bað fyrir kærri kveðju til Íslands og vildi koma því á framfæri við aðstandendur sem eflaust hafa af honum miklar áhyggjur, að hann yndi hag sínum vel, ætti nóg af slikki og væri væntanlegur aftur til landsins í janúar.

Týnda myndin úr grettukeppninnni komin í leitirnar

Fyrir rúmum 15 árum síðan missti Davíð æskuvinur Sósa augað í hræðilegu slysi er hann var að vinna sem messagutti á línubát fyrir vestan.
Davíð tókst á við afleiðingar slyssins af mikilli karlmennsku og hefur ekki á neinn hátt látið afleiðingarnar há sér í einu né neinu. Davið er mikill húmoristi og átti hann það til að grínast á ótal vegu með þetta óhapp sitt. Eitt af uppáhalds uppátækjum hans, var að skora á menn í grettukeppni. Myndin hér til hliðar var tekin í fyrstu grettukeppninni sem haldin var heima hjá Dabba á Nönnustíg, en hún sýnir verðlaunagrettu Davíðs sem er ein sú svakalegasta sem sést hefur um víða veröld og þó víða væri leitað. Davíð átti síðan eftir að nota þessa grettu við ýmis önnur tækifæri samferða mönnum sínum til yndisauka.
Hrun á hlutabréfamörkuðum rakin til eins manns

Eins og flestir hafa tekið eftir þá hafa hlutabréf á mörkuðum hér heima og erlendis tekið mikla dýfu undanfarið. Greiningardeildir bankanna rekja þessa miklu lækkun til eins manns og kenna honum alfarið um hrunið. Maður þessi ber nafnið Elías Óskar Illugason og hefur honum tekist einn síns liðs að knésetja helstu hlutabréfamarkaði heimsins á örskotsstundu með illa ígrunduðum kaupum í félögum sem eru á hraðri niðurleið í von um skjótfenginn gróða. Sprellinn eins og hann er oftast kallaður hefur eins og gefur að skilja ekki farið varhluta af þessum heimskulegu kaupum sínum sjálfur og hefur hann nánast tapað öllu sínu fé og það á mettíma. Kallinn virðist þó ekki dauður úr öllum æðum og er Sósi talaði við hann fyrir skömmu var hann á leið niður í kauphöll á reiðskjóta sem hann festi kaup á í morgun (búið að hirða af honum bílana) og tjáði hann Sósa að hann ætlaði sér að gera góðan díl á bréfum í Icelandair sem væru á spottprís eins og hann orðaði það.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Svei þér strákskratti

Hinn hátt skrifaði og undurfagri aðstoðarmaður himna föðurins háa komst í hann krappann um helgina, er hann ásamt nokkrum bísness mönnum að austan helltu í sig helst til miklu kneifaröli (sem kennt er við sjálft Vatíkanið), í mikilli veislu sem páfagarður hélt um helgina í tilefni af engu. Páfinn lennti í "fight" eins og hann orðaði það og var því færður á nærliggjandi lögreglustöð þar sem hann fékk að sofa úr sér ölvímuna.
Páfagarður framleiðir bjór

Páfagarður eins og hann leggur sig tók þá ákvörðun á dögunum að hefja framleiðslu á áfengu kneifaröli til þess að renna styrkari stoðum undir fjárhag garðsins sem í gegnum aldirnar hefur þurft að lepja dauðann úr skel eins og flestir vita.
Fyrstu kippurnar komu í búðir um helgina og runnu út eins og heitar lummur, enda ekki á hverjum degi sem menn hlotnast að svolgra í sig heilögum bjór.

mánudagur, nóvember 05, 2007

Rassinn á Sósa starir út í mannhafið
Sósi sem Senjoríta
Ekki nóg með að Sósi beraði á sér afturendann á árshátíðinni heldur fór Sósi líka í kjól og sló í gegn sem spönsk senjoríta.
Meira ruglið allaf hreint á honum Sósa!
Sósi sýnir á sér þjóhnappana
Sósi tók að sér veislustjórn á fyrstu árshátíð sameinaðs fyrirtækis VGK-Hönnunar hf. sem haldin var í Barcelona um helgina. Sósi er ekki þekktur fyrir að fara hefðbundnar leiðir og byrjaði því hátíðina með því að bera á sér afturendann fyrir framan 400 manns.
Sósi manar hvurn sem er að leika það eftir!

miðvikudagur, október 31, 2007

Óli Jó nýr landsliðsþjálfari

Óli Jó eða Óli Djók eins og hann er oftast kallaður var í gær ráðinn sem þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu til tveggja ára. Það er gaman að segja frá því að Sósi lék á sínum yngri árum handknattleik með kauða og lék síðan undir hans stjórn knattspyrnu við góðan orðstír. Sósi skrapp því í heimsókn til kallsins og óskaði honum til hamingju með nýja starfið.
Sósi fékk að smella þessari mynd af honum þegar hann stillti sér upp með alla verðlaunapeningana sem hann hefur unnið sér inn með FH-ingum síðustu þrjú árin.
Óli á án efa eftir að bæta við blingið sem nýr landsliðsþjálfari, það er ekki nokkur spurning.
Tískurugl

Siggi sonur Sósa oft kallaður "Geðsiggi" sökum hvursu geðvondur hann getur orðið, sást bregða fyrir í þessari múnderingu á dögunum. Sósa lék forvitni á að vita af hverju í ósköpunum sonur hans íklæddist Nintendo íþróttagalla og auk þess forljótum í ofanálag. Ekki stóð á svari hjá stráksa "Pabbi djöfull getur þú verið hallærislegur mar". Sósi skilur hvorki upp né niður í tískunni þessa dagana sem rokkar á milli að vera Billabong-Quicksilver eitthvað og DonCano-Millett-Converse skræpótt rugl.

Endilega smellið á myndina hér til hliðar til þess að skoða búninginn betur!

mánudagur, október 29, 2007

Sósi og Lomma alltaf í stuði!
Þessi mynd var tekin af Sósa og Lommu í sumar þar sem þau göntuðust saman í flæðarmálinu á Elbu, en þar voru þau í stuttu pissustoppi á ferð sinni um Miðjarðarhafið.
Jesús sáttur með nýju biblíuþýðinguna!

"Já ég er bara massasáttur með þýðinguna á bókinni hans pabba. Kallinn er líka alveg að digga þetta, það eina sem hann fetti fingur út í var liturinn, hann hefði viljað hafa hana hvíta í staðinn fyrir rauða, en ég hlusta nú ekki á þetta raus í kallinum enda er hann vita litblindur" sagði Jesús Kr. Jósepson er Sósi sló á þráðinn til stráksa í gærkvöldi.

föstudagur, október 26, 2007

Lomman á leið út á vinnumarkaðinn á ný!

Sú frétt var að berast í hús að frú Loðmfjörð hefði ráðið sig í vinnu hjá ónefndu fyrirtæki hér í bæ og eru allir nánustu ættingjar og vinir hæstánægðir og guðs lifandi fegnir með þennan ráðahag Lommunar og óska henni velfarnaðar í starfi. Lomman hefur eins og flestir vita setið að sumbli og neitt matar og drykkjar í ómældu magni þá mánuði sem öngvin var vinnan og hefur nú bætt á sig um 15 kílóum af mör (Heimild: Sósi). En nú sér fram á bjartari tíð með aur í vasa og rass í rækt enda öngvin tími fyrir sukk og svínarí lengur. Lomman hefur nú þegar fjárfest í dragt og fartölvu eins og bissnesskvenna er siður og þykir Sósa það miður enda fjárhagurinn í rúst eftir margar langar og strangar utanlandsferðir undanfarið. En koma tímar koma ráð ef vel er til sáð og ekki stendur á Sósa þegar gengið er til sáningar (meira ruglið).

fimmtudagur, október 25, 2007

Ægir hættur í kennslunni og komin í Háskólann

Ægir Sigurgeirs hefur sagt skilið við kennslustörfin í bili og hefur snúið sér að námsbókunum. Þessi mynd var tekin af kauða er hann var á leið í vísindaferð með bekknum sínum og virtist hann vera töluvert meira ölvaður en skólafélagar sínir.
Gísli Ölver í Simmebbinu!

Gísli Ölver Sigurðsson vinur Sósa til margra ára "lennti í því" eins og svo margir aðrir, að fara aðeins yfir strikið á Visakortinu þegar hann var í útlöndum um daginn. Gísli lét það þó ekki slá sig útaf laginu frekar en fyrri daginn og réð sig því í aukavinnu hjá Mcdonalds þar sem hann átti að sjá um sinnepið. Eitthvað virðist Gísla hafa farist það illa úr hendi því hann réð engann veginn við verkefnið og glutraði sinnepi niður hægri vinstri. Er Sósi sló á þráðinn til kauða og spurði hverju skipti, svaraði hann "Æji ég veit það eiginlega ekki, ég er vanur að höndla með gaura og fírtommu en ekki með eitthvað helvítis glundur í krús" Gísli var engu að síður kosinn starfmaður mánaðarins enda var hann snöggur að þrífa upp simmebbið eins og hann kallaði það, og gekk auk þess í öll önnur helstu störf óumbeðinn.
Lomman komin heim frá New York

Eins og flestum ætti að vera kunnugt um þá fór Lomma með Sósa sínum til New York síðastliðna helgi og skemmti sér vel í Sósahrammi. Lommuhróið notaði tækifærið og fór í fegrunaraðgerð að hætti New York búa og lét fylla aðeins í barminn og fékk sér nýjar tennur. Sósi er ekki alveg á því að vel hafi tekist til og lætur því lesendum Sósabloggs það eftir að segja til um hvernig til tókst. Hvað segið þið, þumall upp eða niður?
Það eru fleiri en Sósi sem eru snaróðir í snakkinu!

fimmtudagur, október 18, 2007

Hanna Birna svekkt og sár!

Ekki eru allir jafn sáttir við lok mála í borginni og síst af öllum Hanna Birna Kristjánsdóttir sem hefur farið hamförum á Birni Inga svo ekki sé dýpra í görnina rekið.

En nú er nóg komið af hinu svokallaða REI máli og öllum vangaveltum í kringum það mál og setjum því punkt hér.
Tekið hef ég hvolpa þrjá

Grýla lætur ekki að sér hæða er kemur að því refsa óþekkum strákum fyrir óhlýðnina. "Þessir strákpjakkar munu nú fá að finna fyrir refsivendi Grýlu gömlu" sagði Grýla við Sósa sinn (sem hún heldur mikið upp á) er Sósi kom við í hellinum hjá henni síðastliðinn mánudag til að fá sér skonsu. "Ætli ég saxi þá ekki niður og noti þá sem bragðefni í súpu sem ég hef verið með í kollinum í þó nokkurn tíma. Var svona með basicið á hreinu varðandi aðal hráefnið en vantaði eitthvað til þess að peppa þetta upp. Held að ég nái því bragði fram sem ég hef verið að leita að, ef ég nota smá dass af hvorum þeirra" sagði Grýla við Sósaling að lokum og hvaddi hann með virktum í hellisskútagatinu.

"Rokk on" öskraði síðan Grýla á eftir Sósa svo undirtók í fjöllunum.

miðvikudagur, október 17, 2007

Villi Vill tekur hnakkaskiptum!

Vilhjálmur Vilhjálmsson eða Villi Villi eins og flestir kalla strákinn hefur loksins látið hártoppinn fjúka eftir ótal ábendingar frá fagfólki í hárbransanum. Villi skartar nú nauðum skallanum og lítur mun betur út fyrir vikið. "Það var komin tími á breytingar og því lét ég toppinn og bindið fjúka í bili" sagði Villi við Sósa í stuttu viðtali í gær. Þess má geta að Villi villi verður aðstoðarmaður Jóns Ársæls í vetur og mun leysa hann af á skjánum ef Jón lendir í einhverju veseni.
Dagur Bergþóruson Eggertsson nýr borgarstjóri í Reivík.

Í stuttu samtali við Sósablogg sagði "Spartdagur" eins og hann nú vill láta kalla sig að nú væru nýjir tímar að renna upp í borginni og að nú yrði tekið á málum af festu. "Framvegis verður ekki einu sinni nammi á laugardögum lömbin mín" sagði Spartdagur við Sósa og strauk lambinu Binga um vangann og glotti við tönn. Bingi jarmaði þá hjákátlega og vissi ekki í hverja loppuna hann átti að stíga af kæti. "Jæja, 20 armbeygjur og 60 sitt upp lömbin mín" veinaði síðan Spartdagur á lömbin sín og tók heljarstökk út í náttmyrkrið.

Sósi óskar Spartdegi til lukku með nýju stöðuna.


Sósi mælir með "The Crying Game"
Þessi var að detta inn á leigurnar, mögnuð mynd um snöktandi stjórnmálaflokk sem má hvergi Wham sitt vita.
Leikarar: Villi Vill, Gísli Marteinn, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Júlíus Fífill o.m.fl.
Leikstjóri: Villi Vill
Þetta á ekki eftir að ganga upp, Sósi hefur bara öngva trú á því!
Bingi Glæpur

Sósi hafði ætlað sér að skrifa langa grein um hið svokallaða "Rei" mál sem tröllriðið hefur allri umræðu á landinu síðustu daga, en hefur nú tekið þá ákvörðun að gjöra það ekki. Ákvörðunin er tekin út frá miklum þrýstingi nokkurra auðmanna sem gætu orðið fyrir töluverðum búsifjum ef Sósi léti gamminn geysa á einum virtasta og víðlesnasta fréttamiðli á norðurhverli jarðar, Sósabloggi. Sósi settist því að samningaborði auðmanna og samdi um að auðmennirnir myndu sjá til þess að Sósablogg skyldi aldrei líða fjárskort og að þeir myndu fjármagna útgáfu þessa netmiðils til næstu 20 ára og væri sá samningur óuppsegjanlegur af beggja hálfu til 50 ára, að því tilskyldu að kjarasamningar héldust óbreyttir til næstu 15 ára og að vísitalan myndi ekki hækka en sem nemur hálfum launum kennara til 5 ára. Ekki stóð þó stafkrókur í þessum samning um að Sósi mætti ekki skella fram eins og einni mynd sem tengdist málinu.