miðvikudagur, maí 06, 2009

Grillseasonið að hefjast!

Þá er kominn tími til þess að taka fram grillið að nýju. Það gerði mamma Sósa að minnsta kosti síðust helgi.

Bin Laden er fundinn!

Hinn skeleggi og dagfarsprúði hryðjuverkamaður Osama Bin Laden er loks fundinn eftir mikla og víðtæka leit að kauða í mörg ár. Bin fannst við uppgröft á fornum Azteka minjum og var hinn hressasti er hann steig upp úr moldarhrúgaldinu. "Jesus, finally you find me you moterfuckers" á Bin að hafa sagt er hann sá bjargvætti sína. Hann á síðan að hafa klórað sér letilega í pungnum og ætlað að rölta í burtu en varð ekki kápan úr þeirri læðu og var færður í járn.

Silfrið heima í stofu

Hinn skeleggi afturhaldskommatittur Egill Hengjason hefur tekið þá rökréttu ákvörðun að Silfrið verði í framtíðinni tekið upp í stofunni heima hjá honum. Þessa ákvörðun tók Egill eftir að hann festist í útidyrahurðinni heima hjá sér og hafði setið þar fastur í nokkra daga og var farinn að lykta eins og gráðostur á túr. "Ekki hætti ég að éta" öskraði Hengjason á blaðamann Sósi.is er hann óskaði eftir skýringum á breyttum upptökustað Silfursins svo drundi í öllum silfurbúnaði í nágrenninu.

þriðjudagur, mars 10, 2009

Næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?

Þessi geðþekki, dagfarsprúði og myndarlegi maður gæti orðið næsti formaður Sjálfstæðisflokksins ef heimildi Sósa herma rétt.
Ríkisskattstjóri er sko ekkert að djóka með etta!
Von Dirty enn í felum!

Þessa símamynd fékk Sósi senda fyrir skömmu af Von Dirty einhversstaðar í útlöndum að fela sig fyrir kreppunnni. Það virðist vera alveg sama hvernig kappinn reynir að dulbúa sig, alltaf skal hann þekkjast á útrásartönnunum sem hann keypti sér fyrir hlutabréfagróða í góðærinu. Sósi þollir að veðja efri góm upp á það að vefjarhötturinn á höfði kauða er smekkfullur af gjaldeyri eða einhverju verra sem þolir ekki dagsins ljós.

Von Dirty, komdu heim og skilaðu gjaldeyrinum sem þú stalst frá hinum vammlausu!
Aron dottinn út úr IDOL stjörnuleit!

Hinn geðþekki og vambmikli Hnakki Aron Pálmi, datt fyrir skemmstu út úr Idol stjörnuleit þegar keppnin var skammt á veg komin mörgum til mikillar furðu. Aron sem byrjaði keppnina af krafti og heillaði dómarana upp úr skónum náði sér ekki á strik í framhaldinu og var vikið úr keppninni undir háværum hlátrarsköllum dómara og þeirra sem á hlýddu. Aron nefnilega gleymdi textanum í miðju lagi og tók þá upp á því að syngja lagið afturábak sem vakti mikla kátínu viðstaddra. "I just panicked so I reversed the words and shit" sagði Aron stuttu eftir keppninna er hann var inntur eftir þessari skondnu uppákomu. "I just lesblindur to and dont kn0w how to lesa you skill me" sagði þessi geðþekki vambarpúki að lokum og brostu út í annað svo söng í öllum bakaríum landsins.

mánudagur, mars 09, 2009

Heilagur Davíð!
Gunnar Birgisson kominn aftur í sama farið!

Eins og flestum er kunnugt um, þá gerði Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi verulega gott mót á dögunum er hann fór í afeitrun til Póllands á vegum Jónínu Ben. Þar náði Gunnar að kötta sig niður í ræmur svo stór sá á honum og léttist að eigin sögn um ein 30 kíló á 6 dögum. En samkvæmt myndinni hér til hliðar sem tekin var af Gunnari á Goldfinger um helgina virðist Adam ekki hafa verið lengi í paradís. Gunnar á samkvæmt áreiðanlegum heimildum að hafa étið allt sem að tönn á festi eftir að hann kom heim og hafa í kjölfarið bætt á sig einum 60 kg. Gunnar á samkvæmt sögusögnum að hafa étið heilann strætisvagn með vagnstjóranum og 14 skiptimiðum í einum bita aðeins örfáum dögum eftir að hann kom heim úr afeitruninni. Svei attann Gunnar, maður étur ekki strýheilann Strætó!

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

þriðjudagur, febrúar 17, 2009

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins?
Þessi kauði er ekki talsmaður Sósa, höfum það alveg á hreinu svo það sé alveg á tæru.
Sverð okkar og skjöldur!
Dr. Gunni hefur komið víða við!

miðvikudagur, febrúar 11, 2009

Von Dirty felur sig í kreppunni

Bankaskelfirinn og fjármálakreppan Mr. Von Dirty er samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sósi.is í felum í Afghanistan. Í kjölfar bankakreppunnar sem hann einn og óstuddur hratt af stað með ótímabæru hlutabréfabrölti sínu, sá hann sér ekki lengur vært á hinu helfrosna Ísalandi og flúði land. Þessi mynd var tekin af kauða er hann hugðist kaupa sér klossa á útsölu en var síðan vísað á dyr fyrir að tala hebresku á ensku við búðarkonuna.
Heilög Jóhanna heisanna, hósanna
Svefnprófessorinn gallharður kommúnisti

Svefnprófessorinn Karl Ægir Karlsson lét ekki sitt eftir liggja í mótmælunum gegn ríkisstjórninni og ný-frjálshyggjunni á dögunum. Prófessorinn lék við hvurn sinn fingur á Austurvelli og dansaði meðal annars stríðsdans á bálkestinum fyrir framan Alþingi Íslendinga pungsveittur með forláta heykvísl í hendinni. "Halim AL heim, Geir út í geim" veinaði prófessorinn út í andrúmsloftið á milli þess sem hann henti sér á bálið og baðaði sig í piparúða. Er doktorinn var spurður að því hvort hann ætlaði að bjóða sig fram til þingsetu svaraði hann "fari það í þúsund trilljón tryllta, tarfóða, tólgsadda, tannhvalsétandi, termítabitna túnfiska í Trékyllisvík, ég er ekki alger fáviti" og gaf fréttamanni einn vel útilátið kjaftshögg að hætti Þorlákshafnarbúa.

miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Er Sævar Síselskí í raun Jesper úr Kardemommubænum?

Getur það verið að Sævar Síselskí sé í raun Jesper Síselskí? Svör óskast send á Sósi.is fyrir næstkomandi þriðjudag.
Von Dirty á kreik á ný

Hinn elskulegi og teprulegi bissnesmaður Von Dirty, sást í fyrsta skipti opinberlega eftir bankahrunið á vappi í Rúanda á dögunum. Er Rúandískir fjölmiðlamenn fréttu af veru snáðans í landinu þustu þeir á vettvang í einu vetfangi og tóku þessa skemmtilegu mynd af kauða. Eins og sést, var Von Dirty óvenjulega hátt brókaður að þessu sinni og krafðist það frekari skýringa. Sósi sló því á þráðinn til kauða og spurði hverju sætti. "Æji ég er búin að vera eitthvað svo lausgirtur upp á síðkastið að ég ákvað að hysja upp um mig buxurnar í þeim efnum" sagði Dirty hálf skrækróma í tólið.
Ástvaldur veldur usla á eyjunni Mön

Þessi mynd var tekin af snúllusnúðnum Geira Ástvalds er hann var í sumarfríi á eyjunni Mön síðastliðið sumar. Ástvaldurinn spókaði sig þar um í aðsniðnum gallastuttbuxum við litla hrifningi innfæddra Manarbúa sem notuðu hvert tækifæri til þess að púa á hann og hreyta í hann ónotum. Þrátt fyrir þetta þá sagðist Ástvaldur í samtali við Sósa hafa verið sáttur við fríið og ekki erfa neitt við íbúa Manar þó svo að þeir hafi látið ýmis orð falla á Mönísku.

miðvikudagur, janúar 28, 2009

Geðveikin ríður ekki við einteyming!
Einhver ruglingur í gangi þarna!
Neyðarstjórn kvenna!
Byltingarforinginn
Enn af mótmælunum
Mótmælin í hnotskurn

föstudagur, janúar 09, 2009

Toggi Þráins varð fimmtugur í gær

Við hér á Sósi.is óskum Togga Þráins hjartanlega til hamingju með fimmtugsafmælið.
Fermingarmynd af Sveinbergi Gíslasyni

Þessa óborganlegu mynd fékk Sósi senda frá móður mannsins á dögunum með þeim tilmælum að Sósi myndi setja hana á netið. Sósi býður öllum vel að njóta.
Dabbi fékk sull í böllinn
Castro hætti í pólitík
Bush varð sífellt líkari Hitler
Fischerinn meðetta
Bobby og Aron náðu vel saman
Bobby gekk í rússnesku vitleysingjakirkjuna
Bobby Fischer tjillaði á kanntinum
Bjarni hljóp enn eitt maraþonið
Bingi og Gauji börðust á banaspjótum
Bingi skildi heilu hnífasettinn eftir sig á glámbekk
Bill Gates þróaði einn eitt stýrikerfið
Benni var í buffinu
Ástþór Magnússon sté aftur fram á sjónarsviðið