miðvikudagur, mars 09, 2005



Kvöldið í gær var alveg meiriháttar. Kerlingin eldaði borgara afan í mig og krakkaskrílinn, krakkarnir fengu kók með en ég heimtaði bjór (sem ég fékk). Þegar við vorum búin að slafra í okkur þá lagðist ég í sófann og setti mig í stelllingar fyrir leikina í meistaradeildinni. Rakel kom þá niður og var með eitthvað múður, sagðist ætla að horfa á Gilmore Girls og að ég fengi bara að horfa á einn leik. Ég hélt nú ekki og teipaði hana því upp á vegg. Hún sagði ekki múkk eftir það. Ætla heim í hádeginu og taka hana niður, hún þarf nefnilega að komast í Smáralind og kíkja á nýju sendinguna af kúrekastígvélunum sem voru að koma. Posted by Hello


Þessi mynd er með þeim fyndnari sem ég hef sett hér inn á siðuna að mínu viti. Þetta er mynd af handavinnukennaranum hans Sigga, sem hann tók af henni þegar hún var að skamma hann fyrir að hafa tekið upp símann sem hann fékk í afmælisgjöf frá okkur í fjölskyldunni. Ég spurði hann í gær hvort að hún hefði ekki trompast yfir því að hann hefði tekið af henni mynd?? "Nauts, hún hafði ekki hugmynd um það" sagði Siggi og hló. Hrikalega fyndið, svipurinn á kerlingunni er alveg frábær og með einn putta upp í loftið.Posted by Hello

þriðjudagur, mars 08, 2005

Það er greinilega eitthvað þunglyndi í gangi þessa dagana, engin bloggar neitt og ekkert skemmtilegt er í gangi.

mánudagur, mars 07, 2005


Siggi átti afmæli í gær, varð 11 ára gamall. Ég og Siggi fórum í bíó með nokkrum af vinum hans í tilefni dagsins og skemmti ég mér konunglega á rómantísku gamanmyndinni Hitch sem Siggi valdi og sá mikið eftir. Við fengum okkur síðan pitzu á eftir sem við skoluðum niður með ísköldum bjór. Strákarnir urðu náttúrulega blindfullir af einum bjór og ég skellihló að þeim þar sem þeir bulluðu tóma vitleysu. Við fórum síðan heim og tókum upp pakkana. Siggi fékk gsm síma frá okkur fjölskyldunni og varð hann alveg hoppandi glaður yfir því (enda vel við skál drengurinn). Rakel ákvað að síminn þyrfti að vera af allra nýjustu gerð svo hún lét sér ekki muna um það að kaupa Nokia 34X4500Gillette með innbyggðri rakvél. Rakvélin á eftir að koma sér vel fyrir Sigga, enda stutt í það að skeggbroddarnir fari að láta sjá sig. Siggi var hálf timbraður í morgun eftir bjórinn en jafnaði sig fjótt eftir að hann skellti í sig hráu eggi í morgun áður en hann fór í skólann. Þeir sem vilja ná í Sigga í síma, er bent á að hringja í 8633362 sem er gamla númerið hennar Loðmfjarðar. Sósi smellti af mynd af stráknum er hann fékk símann og postum við henni hér með. PS. verð að fara að taka niður jólaskrautið! Posted by Hello

Clinton hefur engu gleymt! Posted by Hello

Jórunn sendi mér link á msn sem vísaði á þessa mynd. Hún sagðist hafa rekist á hana þegar hún var að leyta að einhverju á google. Ef maður fer í properties á myndinni þá kemur í ljós að hún er vistuð undiðr nafninu "swollen cocks". Jórunn hefur því verið að leyta að "Swollen cocks" á netinu, Jórunn þó!! Posted by Hello

Þessi er nokkuð góður! Posted by Hello