"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
miðvikudagur, janúar 05, 2005
Mikil nýjársgleði var haldin á Njarðargötunni á nýjársdag. Þar mætti prúðbúið fólk með það eitt að leiðarljósi að skemmta sér og það ærlega. Gestir stóðu við stóru orðin og skemmtu sér konunglega en eitthvað fór áfengið öfugt ofan í suma því þeir skemmtu sér svo mikið að hurðar, stólar og jólatré fjölskyldunnar fengu að kenna á því óþvegið. Nokkrar skræpur læstus inni á klósetti og hreinlega töpuðu sér af því að þær voru þar með útilokaðar frá frekari þátttöku í nýjársgleðinni og létu reiði sína bitna á klósetthurðinni svo stórsá á. Húsráðandi þurfti því að grípa til neyðarúrræðis og blés því til stórsóknar gegn hurðinni sem skildi að villidýrinn á kamrinum og aðra veislugesti. Hurðinn lét að lokum í minnipokann gegn þessum stöðugu árásum úr báðum áttum og lyppaðist í gólfið kvikindunum á kamrinum til mikillar gleði. Þetta var annars alveg feiknagott partý en sumir fóru kannski einum of geyst í ölið. En batnandi mönnum er best að lifa.
Jæja þá er nýtt ár gengið í garð með nýjum fyrirheitum. Ég las stjörnuspánna um þessi áramót eins og ég geri alltaf og gat þá ekki betur séð en að árið yrði allra best fyrir þá sem eru fæddir í tvíburamerkinu. Rakel loðm. er tvíburi þannig að ef 10% af því stenst sem stendur í stjörnuspánni þá er hún í góðum málum. Í minni stjörnuspá kom einungis fram að ég fengi nóg að ...íða á því herranns ári 2005. Það verður því nóg að gera hjá Kelu loðm á nýju ári.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)