![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEh11HjuU6UPD7AYmg4k9oB48wuHPhjRiZMxmphZqE88ivQzyj99h9K73YDsEHmQAQlCspf0mwD6VD-mUATyvgoRay8GwObygpeS6A90TlxZowNRjK1O-Hq3bub0BGtpJtXF0E_SQQ/s400/elli+vel+girtur.jpg)
Hinn elskulegi og teprulegi bissnesmaður Von Dirty, sást í fyrsta skipti opinberlega eftir bankahrunið á vappi í Rúanda á dögunum. Er Rúandískir fjölmiðlamenn fréttu af veru snáðans í landinu þustu þeir á vettvang í einu vetfangi og tóku þessa skemmtilegu mynd af kauða. Eins og sést, var Von Dirty óvenjulega hátt brókaður að þessu sinni og krafðist það frekari skýringa. Sósi sló því á þráðinn til kauða og spurði hverju sætti. "Æji ég er búin að vera eitthvað svo lausgirtur upp á síðkastið að ég ákvað að hysja upp um mig buxurnar í þeim efnum" sagði Dirty hálf skrækróma í tólið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli