fimmtudagur, júní 09, 2005

Hvar er árans Lomman núna?


Hvar er Lomman féll niður í gær við lítinn fögnuð áhangenda þess liðar hér á Sósi.is. En núna hefur Sósi gert yfirbót á því og postar því hér getraun númer tvö. Eins og áður, þá eru vegleg verðlaun í boði. Posted by Hello
Sósi ískaldur á kanntinum með eina feita!

Alveg er spaið í Laugum að skora feitt þessa dagana. Sósi skellti sér í ísbað í hádeginu, chillaði á kantinum og lét dekra við sig á alla kanta. Sósa var meira að segja boðið upp á eina feita svona til þess að ná úr sér mesta hrollinum þegar í ísinn var komið. Sósi sló ekki hendinni á móti því og saug því stautinn af áfergju. Er sú feita var uppurinn var boðið upp á Vodka í Magic skreytt með einiberjarunna sem rann ljúflega ofan í kallinn. Sem sagt ísba?ð, ein feit og vodka í hádeginu, það er málið. Dekrið kostar 6 krónur en þeir sem versla reglulega í Bónus fá afslátt og þurfa því einungis að borga túkall eins og segir í laginu. Saltstöng og rúkál túkall! Posted by Hello
Jón með fullar hendur fjár!


Siggi Galdrasmiður hringdi í mig rétt áðan og vildi ólmur að ég postaði þessari mynd af Jóni Rekavið Jónssyni frá Kirjubóli á Ströndum. Siggi sagði að þarna hefði hann komið upp um svik Jóns, því þarna sæist það í svart hvítu að Jón hefði ekki keypt kjólinn á heimasætuna heldur á sjálfan sig. "Helvítis melurinn" hrópaði Siggi í símtólið og skellihló svo undir tók í klettunum . Ég tók þessa mynd af honum þar sem hann sat fyrir utan sauðfjárstetrið og rukkaði inn. Hann var með fullar hendur fjár, þannig að það lítur út fyrir að það hafi verið góð stemning innandyra. Hann virtist nú ekkert of kátur þegar ég smellti af honum myndinni, enda ógreiddur og nývaknaður kallskömmin?" sagði Siggi að lokum og skellti hryssingslega á. Posted by Hello
Sigurður Galdrastrandasmiður í tómu svínaríi!


Siggi Galdrasmiður hafði samband við mig fyrir helgi og var mikið niðri fyrir. Hann hafði ljóta sögu að segja af Jóni sauðfjársetursbónda af Ströndum, sem hann segir að svífist einskis til þess að komast til æðstu metorða þar nyðra. "Hann fer með mann eins og svín" öskraði Siggi á mig í símtólið, þannig að eg vissi ekki í hvorn skóinn ég átti að skíta. "Þetta er ljótt að heyra" svaraði Sósi þá á móti og fór undan í flæmingi. "Hann vélaði mig til þess að sjá um svínin fyrir sig í viku á meðan hann brá sér af bæ til þess að kaupa dress á heimasætuna. Sagði að ég skuldaði honum greiða en mundi síðan ekki alveg útaf hverju það var. Hann bara á svo gott með að tala fólk til að maður bara getur ekki neitað helvítis beininu" sagði Siggi hálf volandi í símann. "ég er alveg viss um að hann var ekkert að kaupa neinn fjandans kjól. Hann hefur bara verið í einhverjum hrossakaupum eða atkvæðasmölun. Hann er bara að tryggja baklandið fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Hann ætlar sér toppsætið og svífst einskis". Þessa mynd tók Jón skellihlæjandi af Sigga þegar hann var að rogast með eina gyltuna á markaðnum á Hólmavík. Posted by Hello
Loðmfjörð leikur við hvurn sinn fingur hálffertug kellingin atarna!

Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að hún Loðmfjörð varð 35 ára gömul í síðustu viku, nánar tiltekið þann 4.júní. Samkvæmt venjum var slegið upp heljarinnar veislu og borið í gesti og gangandi tilheyrandi veisluföng. Boðið uppá grillaðan humar, grillaðar fíkjur fylltar með eðal osti og vafnar inní hráskinku, grillaðan eggaldin vafinn utan um eðal ost og bacuet brauð með tómatjukki. Þessu sporðrenndu gestir síðan niður með eðal hvítvíni og eðal bjór. Allt fór vel fram og komust flestir heim heilir á húfi nema annar gestgjafinn sem lenti í smá kröggum um nóttina, en varð fyrir guðslukku ekki meint af. Myndin að ofan sýnir hversu miklar breytingar hafa orðið á Lommunni síðan hún kynntist Sósa. Sósi er greinilega allra meina bót! Posted by Hello

mánudagur, júní 06, 2005

Diddi á hjólinu - ekki er allt hey í harðindum

Pabbi sló garðinn uppi í sumarbústað um helgina. Hann lét sér síðan ekki um muna að flytja grasið á ryðguðu reiðhjóli niður í Borgarnes. "Ég hef gaman af útivist" sagði pabbi við erlenda ferðamenn sem spurðu hann hverju sætti, þegar hann kom brunanadi fram hjá þeim með heyið á hnakkanum. Það fauk síðan eitthvað í kallinn þegar mamma sagði við hann þegar hann kom tilbaka, að ekki væri allt hey í harðindum. Hann sló því kellinguna líka og hjólaði í hana, en þó ekki niður í Borgarnes.Posted by Hello
Air Africa á fljúgandi siglingu!


Air Africa! Þessi mynd er bara fyndin. Posted by Hello

fimmtudagur, júní 02, 2005



Hvar er Lomman? Þarna er hún! Posted by Hello
Lomman er fundinn!


Sigurður Atlason galdrasmiður fann Lommuna fyrstur allra í gær og er því verðugur handhafi "Lommunar" sem er verðlaunagripurinn í ár. Siggi mun geyma djásnið fram á næsta miðvikudag, en þá hefst ný getraun. Siggi mun fá nafn sitt skráð á bikarinn eins og gengur og gerist í öllum alvöru keppnum. Húrra fyrir Sigga, hann var "glúrnastur" allra þessa vikuna. Posted by Hello

miðvikudagur, júní 01, 2005



Þessari auglýsingu verð ég bara að posta hér á síðunni, þó svo að ég sé eldheitur Man United aðdáandi, mér finnst hún nefnilega alveg óendanlega fyndin. Posted by Hello
Hvar er Loðmfjörð?


Nú ætlar Sósi að brydda upp á nýjung á blogginu í sumar. Hvern miðvikudag verður getraun sem nefnist "Hvar er Loðmfjörð" Leikurinn er svipaður og leikurinn "Hvar er Gunni". Leikurinn felst í því að Sósi postar mynd á blogginu og felur Loðmfjörð inn í myndinni. Það er síðan ykkar að finna hana. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir þann sem er fljótastur að koma auga á Lommu. Hér kemur fyrsta myndin. Posted by Hello

þriðjudagur, maí 31, 2005


Þá hef ég loksins ákveðið hvað ég ætla að gefa Rakel í afmælisgjöf. Ég ætla að gefa henni stígvélin sem hún hefur mænt á í marga mánuði í gegnum gler á tískubúð hér í bænum. Hún á eftir að knúskyssa mig þegar hún opnar pakkann. Posted by Hello


Þarna hefði nú verið gott að hafa varadekk. Posted by Hello

mánudagur, maí 30, 2005



Sósi.is lýsir því hér með yfir að sumarið sé komið til að vera. Posted by Hello

föstudagur, maí 27, 2005


Fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, Ásdís Halla Bragadóttir og vinkona hennar Hólmfríður Karlsdóttir leiksólakennari, spókuðu sig í nýju línunni á ströndinni við Bryggjuhverfið í Garðabæ. Drengur einn sem varð litið út um gluggann er stöllurnar gengu framhjá lét víst þessi orð falla við aldna móður sína "Mamma, mamma, má ég fara út að .............. smíða!. Posted by Hello

Þetta er það nýjasta í strandfatatískunni í dag. Engin kona verður kona með konum nema að skarta slíku dressi á ylströndinni í sumar. Sósa er farið að hlakka til sumarsins. Posted by Hello

fimmtudagur, maí 26, 2005


Sósi fór ásamt fríðuu föruneyti á Nasa um helgina og sletti þar ærlega úr klaufunum. Loðmfjörð var að sjálfsögðu í föruneyti Sósa og fór hún hreinlega á kostum þegar hún hrifsaði hljóðnemann af ICY hópnum og hóf upp raust sína við mikla geðshræringu nærstaddra. Lomman lét sér ekki um muna að sveifla sér í rjáfrinu á meðan á jóðlinu stóð. Sósi andaði léttar er hin limfagra Loðmfjörð lét sig svífa léttilega til jarðar eftir hálofta æfingarnar sem virtust engan endi ætla að taka. Lífverðir ICY hópsins smelltu þessari mynd af kellingunni í hita leiksins, þeir sem vilja eignast eintak af myndinni er bent á að hafa samband við dómsmálaráðuneytið, en hún er þar til skoðunar vegna hugsanlegs dómsmáls á hendur Loðmfjarðar af hendi ICY hópsins, eiganda NASA og fulltrúa gesta. Posted by Hello

miðvikudagur, maí 25, 2005



Talandi um að verpa! Konan á myndinni fékk í magann þegar hún var á ferðalagi um Afríku fyrir skömmu. Hún sagði við blaðamenn er þustu á staðinn er fréttist af varpinu "þetta er einn rosalegasti lelli sem ég hef á ævinni séð. Hann minnir mig dálítið á manninn minn áður en hann byrjaði á Herbalife, en það er nú allt önnur saga". Posted by Hello


Sósi var á göngu í Henglinum í gær og rakst þá á þennan skemmtilega skúlptúr sem fyrirtækið Sólgrjótsnær framleiðir. Posted by Hello

Mikill bruni varð í þingholtunum í gærkvöldi, alveg að ástæðulausu samkvæmt heimildum Sósa. Er fólk í hverfinu varð vart við brunann var Brunalið Reykjavíkurborgar kallað umsvifalaust á staðinn, og voru þeir mættir að vörmu spori. Mörgum þótti það undarlegt er brunaliðssmennirnir, sem allir eru meðlimir í knattspyrnufélaginu EldurogSina, stilltu sér upp fyrir framan brennandi húsið eins og verið væri að taka af þeim mynd fyrir kappleik. "Við gerum þetta alltaf þegar við komum að bruna, þetta er partur af programmet" sagði Evert Tjaldsson brunahanamaður er hann var inntur eftir þessu skringilega uppátæki. Þess ber að geta að húsið brann til kaldra kola á meðan á liðsuppstillingunni stóð, og þurftu því brunamennirnir ekki að sprauta einum einasta vatnsdropa á bálið. "Þetta hefur nú komið fyrir áður" sagði Evert þegar hann var inntur eftir því hvort ekki hefði verið hægt að bjarga húsinu. Posted by Hello


Eins og flestir vita þá hefur Jórunn Loðmfjörð verið vant við látin við hundapössun í Blikanesinu síðastliðna daga. Hún er að passa 6 Júróvisjón Fríse sem tengdó á og heldur mikið upp á. Þetta eru allt saman verðlaunahvuttar og var Jórunn sérstaklega beðin um að hirða þá vel og sýna þeim mikla umhyggju. Ég og Lomma gerðum okkur ferð í Garðabæin í gær til þess að athuga hvort að Jórunn stæði sig ekki í stykkinu (að beiðni herra Eddu). Þetta blasti við okkur er Jórunn opnaði hlerann á kofaskriflinu sem tengdó býr í við afar kröpp kjör í Blikanesi (sjá mynd). Jórunn hefur sem sagt látið allt sem viðkemur hundunum reka á reiðanum og legið í sukki og svínaríi á óðalinu í Blikanesi, enda af nógu af taka þar innandyra, bús nautalundir og rjómakökur upp um alla veggi. Ekki er loku fyrir það skotið að það hafi verið vínlykt af Lommunni er Sósi og Lomma 101 knúðu dyra. Jórunn þó! Posted by Hello


Að venju var tekinn bekkjarmynd af bekknum hennar Stefaníu núna fyrir prófin. Bekkjarmyndin er assgoti fín og allir eru krakkarnir vel stroknir og flottir. Allir máttu í sínu fínasta pússi og fóru meira að segja í bað fyrir myndatökuna. Sósi verður bara að segja það, að sjaldan eða aldrei hefur hann litið augum eins föngulegan og framandi hóp einbeittra unglinga, og dregur þá ályktun af myndinni að hér sé samankomin æska íslands í hnotskurn. Þeir sem vilja fá eintak af myndinni er bent á að setja sig í samband við fangelsismálayfirvöld (myndin er í þeirra vörslu einhverra hluta vegna). Posted by Hello

mánudagur, maí 23, 2005


Eurovision partý fóru víðast hvar úr böndunum! Mikil drykkja og mikil gleði tröllreið höfðuborginnni um liðna helgi Voru höfuðborgarbúar greinilega að fagna góðu gengi okkar Íslendinga í keppninni. Í mörgum strætisvagnaskýlum voru því lúnir einstaklingar á leið til vinnu í morgun og þótti Sósa nóg um er hann keyrði framhjá þessu skýli er hann var á leið til vinnu sinnar eldhress að vanda. Posted by Hello

Kristján Leifur bróðir hennar Rakelar að bömpa einhvern skrjóð í Amsterdam þar sem hann er við nám við virtan listháskóla. Samkvæmt þessari mynd þá held ég svei mér þá að hann sé búin að missa það. Sósi hefur því sett á laggirnar söfnun undir slagorðinu "Laugi heim!". Vonumst við hér á Sósa.is að við endurheimtum Lauga á klakann sem fyrst. Þeir sem vilja styðja við bakið á söfnuninni er bent á að leggja sleða inn á visakort Sósa 4126 0004 00456 56467 sem allra fyrst. Posted by Hello
Þeir sem hafa gaman af karíókí ættu að smella á eftirfarandi link og reyna sig við þetta lag http://www.wad.no/htm/Karaoke/Karaoke.swf Posted by Hello

Þessi ótrúlega frétt var í Fréttablaðinu í morgun undir fyrirsögninni "Át húsbónda sinn í árbít". Tíkin Amanda gerði sér sem sagt lítið fyrir og hramsaði húsbónda sinn Guðmund Árelíusson í sig á augabragði án nokkurrar ástæðu að því er virðist. "VIð erum bara í sjokki" sagði Guðný ekkja Árelíusar er blaðamenn Sósa bönkuðu uppá hjá henni snemma í morgun. "Hún sem alltaf hefur verið svo blíð og góð blessunin, og við höfum ekkert haft uppá hana að klaga þessi 8 ár sem við höfum átt hana. En það var kannski lán í óláni að hún skyldi hramsa kallinn en ekki krakkana, enda kallinn komin vel til ára sinna" sagði Guðný og smellti í góm. Er blaðamenn inntu Guðnýju eftri því hvort tíkinni yrði ekki lógað hið snarhasta, hafði hún þetta um málið að segja. "Ætli við leyfum nú ekki greyinu að liggja aðeins á meltunni áður en við förum að huga að því. Annars er ég ekkert viss um að við losum okkur við hundinn, enda hann kominn á bragðið og því góður varðhundur fyrir vikið. Er ekkert endilega viss um að hún leggist á aðra fjölskyldumeðlimi, erum allavega tilbúin að taka þá áhættu". Posted by Hello