þriðjudagur, maí 10, 2005


Eins og flestir kannski vita, þá er Rakel byrjuð á fullu í ræktinni. Hún hefur verið mjög dugleg síðastliðnar vikur og fer eigi sjaldnar en fimm sinnum í viku. Rakel ákvað áður en hún byrjaði í ræktinni að kaupa sér alvöru leikfimigalla svo hún yrði ekki að athlægi á brettinu. Hún fór því til Halla í Henson og lét hann klæðskerasauma á sig leikfimiföt svo hún myndi hverfa í fjöldann og vekja litla athygli.  Posted by Hello

mánudagur, maí 09, 2005


Birna hans Elíasar var með grímuball um helgina, fyrir nemendur dansskólanns sem hún stýrir með harðri hendi. Allir nemendurnir mættu í glæsilegum búningum og var það mál manna að ballið hefði heppnast vonum framar ef frá er talið það uppistand er varð á ballinu er Elli skúrkur mætti á svæðið í búningi sem mamma hans saumaði upp úr nýjasta Burda blaðinu sem kom í hús fyrir skömmu. Elli skúrkur er bólfélagi Birnu til marga ára og hefur hann marga fjöruna sopið í þeim efnum. Elli sagði við fréttamenn er voru á staðnum að hann hefði alls ekki ætlað sér að skjóta krökkunum skrekk í dyngju, hann hefði einungis ætlað að ylja Birnu um hjartafæturnar með því að mæta sem leðurblaka í partýið. Myndin var tekin af Ella er Birna hafði fleygt honum út úr dansskólanum. Posted by Hello

Horfðu á þessa mynd í 10 mínútur og þú munt elska konuna þína eins og apríkósu. Posted by Hello

Andskotinn sjálfur?? Posted by Hello

mánudagur, maí 02, 2005



Ég og Rakel fórum í Smáralind á sunnudaginn eftir velheppnaða árshátíð hjá Eddu Útgáfu, til þess að kaupa hjól handa Sigga. Við vorum ekki alveg í okkar besta formi enda drukkum við eins og sannir víkingar á árshátiðinni og komum seint heim. Við ákváðum því að vera snögg aððí og kipptum með okkur fyrsta hjólinu sem við sáum. Þegar við svo komum heim með hjólið í gær og Siggi fór sína fyrstu ferð, ætlaði allt um koll að keyra í hverfinu. Myndin að ofan segir allt sem segja þarf (maður á aldrei að fara þunnur að versla). Posted by Hello

föstudagur, apríl 29, 2005


Haukar fögnuðu sínum 7 meistaratitli í handbolta í gær. Harpa Melsteð fagnaði ógurlega lyfti bikarnum hátt á loft og gleypti hann síðan við mikinn fögnuð áhangenda Hauka. Harpa var flutt í skyndi á nærliggjandi sjúkrahús og er líðan hennar eftir atvikum slæm. "Við verðum sennilega að skera og ná honum út þannig, en gyllingin mun sennilega verða eftir í Hörpu, enda alveg gull af kellingu" sagði vakthafandi læknir við blaðamenn er þeir inntu hann eftir því hvernig bikarinn kæmist í bikarasafnið á Ásvöllum. Posted by Hello

þriðjudagur, apríl 26, 2005


Rakel varð eitthvað fúl út í mig fyrr í dag af því að ég hagaði mér eins og fíbbl. Kvíði rosalega að sækja hana, held að hún eigi eftir að draga mig heim á eistunum. Posted by Hello

Bara að reyna að brúa bilið! Posted by Hello
Nú fer hver að verða síðastur!


Vildi bara minna ykkur stelpurnar á að hafa samband við Dassa á Nellys á póstfangið dassi@nellys.is. Drífa sig það fer hver að verða síðastur! Posted by Hello

Búið að einkavæða alþingi???? AL group?? Hvur rækallinn. Posted by Hello

mánudagur, apríl 25, 2005


Ég var búin að velta því fyrir mér alla helgina hvort að ég ætti að posta þessari mynd á netið og var lengi vel á þeirri skoðun að það ætlaði ég ekki að gera. En nú hef ég tekið þá ákvörðun að annað sé bara ekki hægt í ljósi þess hversu myndin er nú fyndin. En þannig er mál með vexti að Loðmfjörð, Sósi og vinir þeirra, fóru út að skemmta sér á föstudagskvöldið. Eins og venjulega þá var mikið stuð á Sósa og fylgdarliði hans og fór hjörðin hreinlega á kostum á öldurhúsum bæjarins. Loðmfjörð var þó allra hressust og lét sér ekki muna um að leggja sig í bjórkælinum eftir að hún hafði skolað niður níunda móhítóinum sem Sósi mataði í hana eins og honum einum er lagið. Eftir 15 mínútna lúr í kælinum var Loðmfjörð aftur komin á dansgólfið og dansaði nú Salsa eins og hún ætti lífið að leysa við alla þá sem gáfu henni auga. Er blaðamenn Séð og Heyrt birtust á staðnum þá var kella einmitt að rakna úr rotinu í kælinum, og það var þá sem þessi mynd var tekin. Loðmfjörð verður því enn og aftur á síðum hins virta fréttarits á næstu dögum. Posted by Hello
Það er komið!!!!!!!!!!!!!!!!


Nýja beikonkókið er komið í allar betri verslanir. Nú getur landinn farið að þamba beikon í tryllingi. Ekki veitir af enda landsmenn flestir að drepast úr hor. Hér lepja menn dauðann úr skel allan ársins hring, en með tilkomu beikonkóksins mun allt breytast. Beikonkók og kjötfars mmmmmmmmmmmmmmm...........! Posted by Hello

föstudagur, apríl 22, 2005


Þeir sem hafa áhuga á hampi, maki, rörum og ofnakrönum er bent á að nú stendur yfir norðurlandamótið í pípulögnum í Perlunni. Keppnin er æsispennandi og má varla á milli sjá hvor keppanda er færari með hampinn. Keppandinn frá Finnlandi virðist vera hæfastur með makið en annars eru keppendur mjög jafnir. Posted by Hello

Sósi, Rakel, Saga, María og Karmen Andrea skruppu í bæjarferð á sumardaginn fyrsta sem er svo sem ekki í frásögur færandi, en við urðum heldur betur hissa þegar við rákumst á þetta tröll á Laugaveginum. Saga var ekkert smeik við tröllið, labbaði upp að því og sagði hátt og snallt "fokk jú, djíses" og veifaði til pabbi síns sem smellti mynd af tröllinu og óknytta stelpunni. Posted by Hello

þriðjudagur, apríl 19, 2005


Ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum, þá vil ég minna fólk á það að ég og mín spúsa erum orðin rík og fræg. Ef þið viljið hafa samband við okkur þá eruð þið vinsamlega beðin um að hringja í Halldóru (símsvörunarkerlingin okkar) í síma 8988198 og panta tíma. Við erum mikið í útlöndum eins og gefur að skilja því nýja fyrirtækið okkar Sósi and Loðmfjörð Group eða SL group hefur aðsetur sitt í London eins og flest önnur Group fyrirtæki. Ef ykkur vantar pening þá getið þið sett ykkur í samband við Einar (fjármálaumsýslumaðurinn okkar) í síma 19 og fengið hjá honum aur, en þó aldrei meira en fimmara. Hafið þið góðan dag og guð blessi mammon! Posted by Hello

mánudagur, apríl 18, 2005

Lúlli verður næsti vítisstrákur (Hellboy)!

Lúðvík Bergsveinsson alþingismaður hefur fengið vilyrði frá alþingi Íslands að taka sér ársfrí frá störfum. "Mér barst bréf frá virtu kvikmyndafyrirtæki í Hollywood í síðustu viku, þar sem farið var á leit við mig að taka að mér hlutverk vítisstráksins í næstu mynd um kauða. Síðast mynd gekk víst mjög vel og makaði krókinn fyrir framleiðendur. Ég sá að vísu aldrei þessa mynd, enda upptekinn á þingi að sýna af mér vítavert háttalag. Ætli það sé ekki þess vegna sem þeir höfðu samband við mig, ég virðist eiga mjög auðvelt með að sýna af mér vítaverða hegðun og það er það sem þessir kvikmyndajöfrar eru að leita eftir." sagði Lúðvík er hann var inntur eftir því, hvers vegna í ósköpunum hann hefði fengið þetta hlutverk. Posted by Hello

Agnes Bragadóttir blaðamaður hefur sótt um launalaust leyfi frá Morgunblaðinu til þess að koma á laggirnar félagi sem mun hafa það að markmiði að bjóða í síma fyrir hönd almennings. Mikill fjöldi Íslendinga hefur heitið því að leggja fé í verkefnið og eru komin loforð upp á hellings pening. Blaðamaður á Sósi.is fór á stúfana og tók tal af Agnesi þar sem hún var að skoða síma í BT í kringlunni. "Okkur finnst þessi flottastur og erum að spá í að bjóða í hann" sagði Agnes er hún var innt eftir því hvort að henni væri alvara með því að bjóða í Símann ásamt sauðsvörtum almúganum. "Þessi er á ágætis verði, með myndavél og svo er hægt að senda smess emm mess í honum" sagði Agnes ennfremur er blaðamaður spurði hana hvort hún væri ekki að djóka. "Við þurfum svona 1000 manns til þess að leggja fram fé í söfnunina svo við þurfum ekki að dreifa þessu á 6 mánuði" sagði Agnes að lokum er hún var spurð að því hvort að hún væri viss um að nóg myndi safnast til þess að aðrir fjárfestar teldu það vænlegan kost að vera með í þessu ævintýri. Er Agnesi var gert það ljóst af blaðamanni Sósi.is, að allir þeir sem hafa fylgst með þessu máli síðastliðnar vikur teldu að hún væri að bjóða í Símann sem er í eigu ríkisins hafði hún þetta um málið að segja "Ja, nú er ég alveg bit, hvaða helvítis vitfyrringsháttalag er þetta nú eiginlega. Ég veit ekki hvað vitleysingi myndi detta þvílíka firru í hug. Það er öllum ljóst að fólk er fífl, og ekki viljum við að fífl stjórni Símanum, er það?" Posted by Hello
Sósi segir mötuneytum stríð á hendur!


Sósi kom við í mötuneytinu eftir mikið átak í ræktinni í hádeginu og setti í sig ótæpilegt magn af fiskibollum, kartöflum, pasta, súpusulli, grænmeti, sósu og fullt af allskyns dóti úr jurta og dýraríkinu. Ekki veit ég hvernig ég yrði í laginu ef ég gerði þetta að vana mínum, þ.e.a.s. að raða svona í mig í mötuneytinu í hverju hádegi. Hugsanlega einhvern vegin svona eins og myndin að ofan sýnnir, kannski verri. Sósi segir nei við mötuneytispúkann og ætlar ekki að heimsækja helvítið fyrr en í fyrsta lagi á næstu öld. Svei þér andskoti!!! Posted by Hello

föstudagur, apríl 15, 2005


Mamma er búin að vera á tölvunámskeiði síðastliðna daga og hefur tekið heilmiklum framförum. Þessa mynd tók ég af henni í matarboðinu á Miðvangi í gær. Posted by Hello


Lúxusfeðgar á ferð og flugi!


Blaðamenn Séð og Heyrt náðu mynd af Lúxusfeðgum er þeir voru á leiðinni út, myndin mun birtast undir fyrirsögninni "Lúxusfeðgar á blússandi uppleið" í næsta tölublaði samkvæmt áreiðanlegum heimildum heimildarmanna Sósa.is. Posted by Hello


Þetta er náttúrulega ekki í lagi! Posted by Hello


Pabbi tók eina rosaflotta mynd af mér á leiknum. Ekki er um að kenna bjórdrykkju því það var ekki seldur bjór á leiknum. Ég er farin að hallast að því að hann sé farinn að sjá verulega illa en neiti að viðurkenna það. Myndin að ofan segir allt sem segja þarf. Posted by Hello

Stadium de Olympic í Munchen, Bayern í stórsókn. Posted by Hello
Lúxusfeðgar í lúxusferð!


Ég og pabbi brugðum okkur á leik í meistaradeildinni í vikunni. Fórum að sjá Chelsea spila við Bayern Munchen í Munchen. Það var mikil skemmtun og góð. Ferðinn einkenndist af miklum lúxus þar sem feðgarnir ferðuðust á fyrsta farrými jafnt á láði sem legi. Matfanga var leitað á dýrustu veitingastöðum Munchenborgar og ekki þurftum við að leita lengi, því hinum megin við hornið á lúxus hótelinu þar sem við gistum var líka þessi dýrindis Schnitscel staður þar sem boðið var upp á lúxus 800 gr Schnitscel sneiðar á verði sem er ekki fyrir hvern sem er að punga út fyrir. Vorum í extra lúxus sætum á vellinum þar sem svartir þjónar báru í okkur eðal bjór og lúxus pylsur kenndar við Bratwurst von Baumgartner. Okkar lið sem er nokkurs konar lúxus lið eins og við feðgarnir vorum í þessari ferð, rúllaði auðvitað upp hinu arfaslaka lið Bayern og tóku ekkert aukalega fyrir það enda á lúxus launum. Enduðum síðan ferðina með því að fá okkur drykk/i á lúxushótelinu þar sem fremsti píanósnillingur veraldar Emmel von Cliderman spilaði ljúfa tóna fram eftir nóttu. Nokkrar gleðikonur voru á barnum þetta kvöld, og reyndu þær að tæla lúxusfeðgana með sér í ljúfa leiki, en þeim varð ekki kápan úr því klæðinu, enda lúxusfeðgar þekktir fyrir eitthvað allt annað en lauslæti og saurlífi. Héldum glaðir í bragði heim á leið daginn eftir á fyrsta farrými, þar sem eðal flugfreyjur struku á okkur vangann og stjönuðu við lúxus feðga eins og mest þær máttu, enda ekki um neina meðal Jóna þar á ferð. Posted by Hello

fimmtudagur, apríl 14, 2005


Það er bloggkrísa í gangi, engin bloggar neitt lengur svo að ég er að spá í að leggja þessa síðu niður. Ekkert gaman að blogga aleinn, Siggi Atla er sá eini sem bloggar eitthvað að viti. Ég er farin í verkfall og hananú.  Posted by Hello