fimmtudagur, júní 16, 2005

Gekt flippaður skítur flæðir yfir Ísland!



Kókaín flæðir nú sem aldrei fyrr yfir landið. Þessar stelpur voru í partýi í Grafarvoginum er maður er nefndur Kristján Kókaín knúði dyra. "Hann var með alveg skítbillegt kók, svo við skelltum okkur á þrjár únsur" sögðu partíljónin er Sósi og fylgdarsveinar hans krössuðu partíið upp úr hálf fimm. "Þetta er gekt flippaður skítur, mar er bara í fljúgandi sælu" sögðu stelpurnar er þær voru spurðar hvernig smakkaðist. Partískíturinn gistir nú fangageymslur lögreglunnar í fljúgandi sælu, enda Sósi og hans menn eindregnir talsmenn "Eiturlyfjalaust Ísland fyrir árið 2006".Posted by Hello
Ostaskeri magnar bál í Hafnarfirði!


Pétur Hafliðason ostaskurðmeistari úr Hafnarfirði lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu um helgina, að það kviknaði í potti hjá honum er hann var að sjóða lummur fylltar með ansjósum. Mikill eldur braust út í kjölfarið og átti Pétur fjötrum sínum fót að launa er hann endasentist út úr eldhúsinu. "Þetta var alveg svaðalegt mar. Lummurnar voru alveg að verða tilbúnar og þá gaus þessi svaðalegi eldur upp úr pottinu. Ætli það hafi ekki verið helvítis ansjósurnar sem kveiktu í lummunum sem kveiktu í gardínunum sem kveiktu í innréttingunni." sagi Pétur við fréttaritara Sósa í Hafnarfirði. Pétur reyndi að slökkva eldinn með hlandkoppi sem hann fékk í vöggugjöf frá ömmu sinni, en hafði ekki erindi sem erfiði. "Það var hland í koppnum, svo ég skvetti því bara á eldinn. En við það magnaðist bálið til mikilla muna. Ég hef verið slæmur í blöðrunni í mörg ár og þvagið lyktar eins og azinton. Þetta var kannski ekki það gáfulegasta sem ég gat gert, en ég verð víst að míga í súra keppi og sætta mig við það að íbúðin er ónýt." sagði Pétur ostaskeri að lokum, miður sín og hálf volandi utan í fréttaritarann.Posted by Hello
Hvar er árans Lomman núna?


Eins og síðastliðinn miðvikudag, þá gleymdi Sósi lið dagsins "Hvar er lomman?". Sósi fékk skyndilega minnið í morgun og neglir því snarlega inn þessu skemmtilega lið sem aðeins einn aðili hefur tekið þátt í hingað til. Aðdáendum Sósa virðist því hafa fækkað svakalega og telur Sósi það vera útaf því að fólk er almennt fýlugjarnt, leiðinlegt, fullorðið úr hófi fram, asnalegt, héralegt, púkalegt og síðast en ekki síst húmorslaust. Posted by Hello

mánudagur, júní 13, 2005

Sósi valinn "Fífl helgarinnar" með nokkrum yfirburðum!

Nú hefur Sósi ákveðið að taka upp á nýjung hér á Sósi.is, en það er liðurinn "Fífl helgarinnar". Eftir hverja helgi verður einhver fyrir valinu sem Fífl helgarinnar og getur hver sem stendur Sósa nærri hreppt titilinn. Það sem menn þurfa að gera til þess að verða þessa heiðurs aðnjótandi, er að haga sér eins og algert fífl um helgar, bjóða af sér slæman þokka, svíkjast um eða gera eitthvað sem almennt er talið leiðinlegt og ekki til eftirbreytni í samfélagi mannana (um helgar). Sósi sjálfur verðu fyrir valinu eftir þessa helgi, enda var hann með eindæmum ódæll, svikull, leiðinlegur og bauð af sér vondan þokka mest alla helgina. Sósi veltist um í partíi fram á rauðann morgun, þrátt fyrir fyrirheit um allt annað og sveik þar með maka sinn til margra ára frú Loðmfjörð svo eftir var tekið. Sósi er því krýndur "Fífl helgarinnar" og er því öðrum víti til varnaðar fram að næstu helgi. Hvað svo gerist næstu helgi er ekki hægt að segja til um, en Sósi hefur ákveðið að hann vinni ekki tvær helgar í röð. Gangið því hægt um gleðinnar dyr kæru vinur, því annars verðið þið fífluð næsta mánudag.Posted by Hello

föstudagur, júní 10, 2005

Óskar Hafliði í góðum fíling


Svenni heldur uppá 35 ára afmælið sitt í kvöld með poppi og lax. Hann er búin að koma fyrir 600 fermetra tjaldi í garðinum hjá sér, það kemur dj að spila og kokkar grilla. Ég held að hann sé búin að bjóða hálfum Hafnarfirðinum. Óskar Hafliði kemur líka. Posted by Hello
Sósi til Nice!


Sósi er á leiðinni til Nice cote'da zur og ætlar þar að tjilla á kantinum og rifja upp gamla takta á sundlaugarbakkanum.Posted by Hello
Elli gengst við barni Birnu og málið er dautt af beggja hálfu


Sósi brá sér á netið og Googlaði nafnið á stúlkukindinni sem segir að Elli sé faðir barnsins. Þegar slegið var inn nafnið "Birna" þá birtist mynd af þessari snót. Ég bar þetta undir Ella og hann kinkaði kolli. Birna er sem sagt ljósmyndafyrirstæta hjá CRAZYSHIT.COM. Er Sósi náði tali af Birnu og bar þetta undir hana þá hafði hún þetta um málið að segja "Ég var að modelast úti á Costa Del Sol í fyrra og þá bombaði hann mig. Málið er dautt frá mínum bæjardyrum séð".Posted by Hello
Elías er orðinn faðir og er gapandi hissa á því!


Elías varð furðu lostinn er hann fékk fréttirnar. "Ég hef ekki riðið neinum" sagði Elli er Sósi sló á þráðinn til hans í gær. "Ég veit hreinlega ekki hvaðan á mig stendur verðið" sagði Elli gapandi hissa á öllu þessu tilstandi. "Ætli maður verði ekki að standa sína plikkt eins og venjulega, og bíta í þetta gallsúra epli. Stelpan heimtar að ég gangist við króanum, þannig að það er ekki hægt annað en að hlýða" sagði Elías að lokum og skundaði inná fæðingardeildina með kandísöskju í annarri og krippling í hinni. "Maður verður að tríta þessar tjellingar" æpti hann er hurðinn lokaðist á eftir honum. Posted by Hello
Hannigan jafnt að framan sem aftan!


Hannigan hressir og kætir líkama og sál, skál! Posted by Hello
Hagkaup - langmesta úrvalið!


Það er ekki hægt að kvarta undan úrvalinu í Hagkaup þessa dagana. Posted by Hello

fimmtudagur, júní 09, 2005

Hvar er árans Lomman núna?


Hvar er Lomman féll niður í gær við lítinn fögnuð áhangenda þess liðar hér á Sósi.is. En núna hefur Sósi gert yfirbót á því og postar því hér getraun númer tvö. Eins og áður, þá eru vegleg verðlaun í boði. Posted by Hello
Sósi ískaldur á kanntinum með eina feita!

Alveg er spaið í Laugum að skora feitt þessa dagana. Sósi skellti sér í ísbað í hádeginu, chillaði á kantinum og lét dekra við sig á alla kanta. Sósa var meira að segja boðið upp á eina feita svona til þess að ná úr sér mesta hrollinum þegar í ísinn var komið. Sósi sló ekki hendinni á móti því og saug því stautinn af áfergju. Er sú feita var uppurinn var boðið upp á Vodka í Magic skreytt með einiberjarunna sem rann ljúflega ofan í kallinn. Sem sagt ísba?ð, ein feit og vodka í hádeginu, það er málið. Dekrið kostar 6 krónur en þeir sem versla reglulega í Bónus fá afslátt og þurfa því einungis að borga túkall eins og segir í laginu. Saltstöng og rúkál túkall! Posted by Hello
Jón með fullar hendur fjár!


Siggi Galdrasmiður hringdi í mig rétt áðan og vildi ólmur að ég postaði þessari mynd af Jóni Rekavið Jónssyni frá Kirjubóli á Ströndum. Siggi sagði að þarna hefði hann komið upp um svik Jóns, því þarna sæist það í svart hvítu að Jón hefði ekki keypt kjólinn á heimasætuna heldur á sjálfan sig. "Helvítis melurinn" hrópaði Siggi í símtólið og skellihló svo undir tók í klettunum . Ég tók þessa mynd af honum þar sem hann sat fyrir utan sauðfjárstetrið og rukkaði inn. Hann var með fullar hendur fjár, þannig að það lítur út fyrir að það hafi verið góð stemning innandyra. Hann virtist nú ekkert of kátur þegar ég smellti af honum myndinni, enda ógreiddur og nývaknaður kallskömmin?" sagði Siggi að lokum og skellti hryssingslega á. Posted by Hello
Sigurður Galdrastrandasmiður í tómu svínaríi!


Siggi Galdrasmiður hafði samband við mig fyrir helgi og var mikið niðri fyrir. Hann hafði ljóta sögu að segja af Jóni sauðfjársetursbónda af Ströndum, sem hann segir að svífist einskis til þess að komast til æðstu metorða þar nyðra. "Hann fer með mann eins og svín" öskraði Siggi á mig í símtólið, þannig að eg vissi ekki í hvorn skóinn ég átti að skíta. "Þetta er ljótt að heyra" svaraði Sósi þá á móti og fór undan í flæmingi. "Hann vélaði mig til þess að sjá um svínin fyrir sig í viku á meðan hann brá sér af bæ til þess að kaupa dress á heimasætuna. Sagði að ég skuldaði honum greiða en mundi síðan ekki alveg útaf hverju það var. Hann bara á svo gott með að tala fólk til að maður bara getur ekki neitað helvítis beininu" sagði Siggi hálf volandi í símann. "ég er alveg viss um að hann var ekkert að kaupa neinn fjandans kjól. Hann hefur bara verið í einhverjum hrossakaupum eða atkvæðasmölun. Hann er bara að tryggja baklandið fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Hann ætlar sér toppsætið og svífst einskis". Þessa mynd tók Jón skellihlæjandi af Sigga þegar hann var að rogast með eina gyltuna á markaðnum á Hólmavík. Posted by Hello
Loðmfjörð leikur við hvurn sinn fingur hálffertug kellingin atarna!

Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum að hún Loðmfjörð varð 35 ára gömul í síðustu viku, nánar tiltekið þann 4.júní. Samkvæmt venjum var slegið upp heljarinnar veislu og borið í gesti og gangandi tilheyrandi veisluföng. Boðið uppá grillaðan humar, grillaðar fíkjur fylltar með eðal osti og vafnar inní hráskinku, grillaðan eggaldin vafinn utan um eðal ost og bacuet brauð með tómatjukki. Þessu sporðrenndu gestir síðan niður með eðal hvítvíni og eðal bjór. Allt fór vel fram og komust flestir heim heilir á húfi nema annar gestgjafinn sem lenti í smá kröggum um nóttina, en varð fyrir guðslukku ekki meint af. Myndin að ofan sýnir hversu miklar breytingar hafa orðið á Lommunni síðan hún kynntist Sósa. Sósi er greinilega allra meina bót! Posted by Hello

mánudagur, júní 06, 2005

Diddi á hjólinu - ekki er allt hey í harðindum

Pabbi sló garðinn uppi í sumarbústað um helgina. Hann lét sér síðan ekki um muna að flytja grasið á ryðguðu reiðhjóli niður í Borgarnes. "Ég hef gaman af útivist" sagði pabbi við erlenda ferðamenn sem spurðu hann hverju sætti, þegar hann kom brunanadi fram hjá þeim með heyið á hnakkanum. Það fauk síðan eitthvað í kallinn þegar mamma sagði við hann þegar hann kom tilbaka, að ekki væri allt hey í harðindum. Hann sló því kellinguna líka og hjólaði í hana, en þó ekki niður í Borgarnes.Posted by Hello
Air Africa á fljúgandi siglingu!


Air Africa! Þessi mynd er bara fyndin. Posted by Hello

fimmtudagur, júní 02, 2005



Hvar er Lomman? Þarna er hún! Posted by Hello
Lomman er fundinn!


Sigurður Atlason galdrasmiður fann Lommuna fyrstur allra í gær og er því verðugur handhafi "Lommunar" sem er verðlaunagripurinn í ár. Siggi mun geyma djásnið fram á næsta miðvikudag, en þá hefst ný getraun. Siggi mun fá nafn sitt skráð á bikarinn eins og gengur og gerist í öllum alvöru keppnum. Húrra fyrir Sigga, hann var "glúrnastur" allra þessa vikuna. Posted by Hello

miðvikudagur, júní 01, 2005



Þessari auglýsingu verð ég bara að posta hér á síðunni, þó svo að ég sé eldheitur Man United aðdáandi, mér finnst hún nefnilega alveg óendanlega fyndin. Posted by Hello