Sósinn komin með I-Phone!"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
fimmtudagur, nóvember 22, 2007
Dabbi Magg fær síðbúna JólagjöfDavíð Magnússyni brá heldur betur í brún á dögunum þegar starfsmaður Póstsins birtist á tröppunum hjá honum með forláta pakkaskrifli í höndunum. Davíð sem átti ekki von á neinum pakka spurði því Póstburðarkvikindið hvurju sætti og fékk þau svör að þetta væri pakki sem hefði lent á milli þilja fyrir um 30 árum síðan og hefði verið að koma í leitirnar. Er Dabbi opnaði pakkann kom í ljós fagur rauður sleði með silfruðum meiðum sem skein á í sólskyninu. "Þetta er alveg eins sleði og ég bað um í jólagjöf þegar ég var 7 ára" öskraði Dabbi víst upp fyrir sig og færðist allur í aukana. "Prófaðu hann maður" sagði pósburðardrengurinn þá og lét Davíð ekki segja sér það tvisvar, skellti á sig hjálmnum og brunaði um iðagrænan túnfótinn það sem eftirlifði dags sér, póstfíflinu og öðrum til mikillar skemmtunar.
Olivier með ankannanlegan sjúkdómÓlífer mágur Sósa Sig var greindur á dögunum með sjúkdóminn "unstoppoloppopus heightolosys" sem er einn af fágæddustu sjúkdómum sem fyrirfinnast í heiminum. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að manneskjur byrja skyndilega að stækka óeðlilega mikið á miðjum aldri og virðast lítil takmörk fyrir því hvað þetta fólk getur stækkað mikið. Einungis er vitað um eitt annað skráð tilfelli, en það greindist á Indlandi fyrir um 400 árum síðan, sá aðili dó úr súrefnisleysi enda komin vel á annað þúsund metra kallinn. Ólífer er nú þegar orðin 2,40 eftir aðeins örfáa daga sem er samkvæmt kokkabókum Sósa allsendis óeðlilegt. Hér sést Ólífer ásamt vini sínum Lúsífer á fjórðungssjúkrahúsinu í Mónakó þar sem þeir voru við mælingar.
(meira andskotans bullið alltaf hreint)
Kalli glímukóngur á nýKarl Ægir Karlsson svefnprófessor úr Reykjavík, kom sá og sigraði á árlegu glímumóti sem haldið var í Þorlákshöfn síðastliðna helgi. Karl hafði mikla yfirburði á mótinu og hreinlega saltaði alla andstæðinga sína niður í tunnu og dró þá eins og slý upp um alla veggi. Í samtali við Karl þá vildi hann þakka spúsu sinni Elsu Jó Man þennan frábæra árangur, en hún átti drjúgan þátt í því að Karl náði að bæta á sig einum 70 kílóum fyrir mótið.
Palli fær sér nýjar varpstöðvarHinn aldni en snoppufríði Páll Valsari, hefur fjárfest í nýjum varpstöðvum til brúks í spánýjum höfuðstöðvum sínum sem eru til húsa í JL höllinni vestur í bæ. Í stuttu samtali við Pál, þá sagði hann að þær varpstöðvar sem fyrir voru í húsnæðinu, hefðu ekki verið hundi á sigandi og hann hefði því tekið málin í sínar hendur og einhent nokkrum þúsurum úr djúpri pyngju sinni og splæst í eitt stykki tojara, svo hann og hinir akademísku fræðispekúlantar sem deila með honum húsnæði gætu verpt með reisn að nýju. Dröbban aðstoðaði Pál við að selflytja tojarann úr Húsamiðjunni, og ekki er annað að sjá en að það hafi verið hin mesta skemmtun.
fimmtudagur, nóvember 15, 2007
Svenni búin að ná gelti í PóllandiSveinberg Gíslason oftast kallaður Lax-1 fór til villisvínaveiða í Póllandi í síðustu viku ásamt fríðu föruneyti. Ekkert hefur spurst til Svenna og félaga fyrr en nú, en Svenni hafði samband við Sósa nú í morgun og tjáði honum að allt gengi vonum framar og veiðin væri betri en engin. Svenni hefur til þessa skotið stærsta göltin og hér til hliðar ber að líta Svenna og bráðina (það er svipur með þeim).
miðvikudagur, nóvember 14, 2007
Elli græðir á tá og fingriElías Óskar græðir nú sem aldrei fyrr og situr nú heima og telur seðla út í eitt. Elías sem varð næstum gjaldþrota um daginn og þurfti að selja allt sitt hafurtask til þess að eiga í sig og á hefur nú snúið við blaðinu og hefur með ótrúlegri þolinmæði náð að snúa taflinu sér í hag. Elli gerði víst góðan díl á bréfum í fyrirtæki sem ekki má nefna og hafa þau bréf ávaxtað sig með ógnarhraða síðustu vikur. Sósi tók þessa mynd af Ella á skrifstofu hans í Skaftahlíðinni þar sem hann fór með gamanmál og útdeildi dollurum til velunnara sinna hægri vinstri.
Otto Tynes í heimsókn hjá fjarskyldum ættingjumOtto komst að því fyrir skömmu, er hann var fyrir rælni að skoða Íslendingabók, að hann á ættir að rekja til Kentucky sýslu í Bandaríkjunum. Hann ákvað því að renna vestur og banka uppá hjá frændfólki sínu. Þessi mynd var tekin viku eftir að hann hitti ættingjana í fyrsta skipti. "Mér leið eins og ég hefði alltaf átt heima þarna" sagði Otto við staðarblaðið Kentucky Post í stuttu viðtali um lífið og tilveruna. Otto er ekki enn komin tilbaka og fólkið á götunnu er farið að tala um að hann komi aldrei tilbaka aftur.
Dabbi Magg skemmtir sér sem aldrei fyrrDabbi Magg tóka svera pakkann á það þegar hann fór út að skemmta sér um síðustu helgi og fór hamförum í allskyns gríni og fíflalátum. Öldruð kona í vesturbænum tók þessa mynd á laugaragsmorgun af kauða er hann renndi sér á sprellanum í ísilagðri rennibraut, næstum nakinn. Hann hafði þó séð sóma sinn í því að setja dýrið í sokk er hann tók salibununa.
Jórunn í kelerísstandi á SnæfellsnesiSósa voru rétt í þessu að berast þær fréttir til eyrna að Jórunn norðursins eða Jóka Lomm eins og hún er oftast kölluð, hefði laumas í skjóli nætur á Hótel Búðir um síðustu í helgi í slagtogi við alræmdan glaumgosa frá Þorlákshöfn. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá áttu Jóka og gosinn ánægjulega helgi og fóru víst oft í sleik.
Þessi mynd náðist af parinu í fjöruborðinu á Búðum þar sem þau voru gómuð í miklum sleik svo skein í bleika góma.
Annars er það að frétta af Jókunni að hún unnir hag sínum vel á Seltjarnarnesi og þar er víst stöðugt fjör á bænum.
föstudagur, nóvember 09, 2007
Heimsfrægur svefnprófessor leysir töfrateninginn á innan við mínútuSvefnprófessorinn Karl Ægir Karlsson hefur sett sér það markmið að slá heimsmetið í að klára töfrateninginn á sem skemstum tíma, en metið er 37 sekúndur og var sett í síðustu viku af einhverjum Indverjaskratta. Karl Ægir sem hefur átt erfitt með svefn upp á síðkastið, notar nú hverja lausa mínútu til þess að æfa færni sína í lausn töfrateningsins. "Ég held ég hafi ekki sofið svona lítið í mörg ár" sagði Kalli er Sósi setti sig í samband við hann mjög svo undrandi á þessu nýja uppátæki kauða.
Elsa Yeoman ekki litið betur út í mörg ár!fimmtudagur, nóvember 08, 2007
Sósi og Lomma auglýsa eyrnamerg fyrir flasskubbKaupsýslumaður kom að máli við Sósa og Lommu þegar þau voru á bæjarrölti í Barcelona um helgina og spurði hvort ekki væri hægt að plata þau í að sitja fyrir í einni auglýsingu eða svo fyrir eina flösku. Sósa og frú fannst það nú ekkert tiltökumál og slógu því til enda ekki á hverjum degi sem maður fær flösku hálf gefins. Er myndatökunni lauk vildu þau skötuhjú að sjálfsögðu fá laun erfiðis síns, og rukkuðu því kaupsýslumanninn um flöskuna. Kaupsýslumaðurinn tók vel í það, seildist ofan í vasa sinn og tók þar upp forláta flasskubb (átekinn) og rétti þeim skötuhjúum skellihlæjandi. Sósa og Lommu fannst þau svikinn af þessum viðskiptum en gátu svo sem ekkert gert til þess að rétta sinn hlut enda um munnlegan samning að ræða. Myndin að ofan er ein af þeim myndum sem birtast munu af parinu í erlendum glanstímaritum á næstunni.
Siggi Atla búin að missa það?Sigurður Atlason Strandamaður og stórvinur Sósa sendi þessa mynd af sjálfum sér á dögunum, þar sem hann er staddur á einhverjum bar í Budapest. Sósa lék forvitni á að vita í hverju hann væri á myndinni og af hverju í andsk... hann væri í þessum ófögnuði. "Ég var náttúrulega rændur eina ferðina enn og átti því ekki í önnur föt að venda. Þetta dress fékk ég fyrir 10 slikk hjá götusala og var ég hæstánægður með þau kaup. Ég fékk óskipta athygli kvennpeningsins í þessu dressi og var meira að segja boðið upp á bjór af karlmanni, þannig að ég get ekki kvartað" sagði Siggi í stuttu samtali er Sósi sló á þráðinn til Budapest á dögunum. Siggi bað fyrir kærri kveðju til Íslands og vildi koma því á framfæri við aðstandendur sem eflaust hafa af honum miklar áhyggjur, að hann yndi hag sínum vel, ætti nóg af slikki og væri væntanlegur aftur til landsins í janúar.





