Sósi óskar öllum fylgjendum sínum til sjávar og sveita gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári:)
"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
fimmtudagur, desember 30, 2010
föstudagur, nóvember 19, 2010
fimmtudagur, nóvember 11, 2010
Einar Vilhjálms kominn aftur á kaf í spjótið!Þessari óborganlegu mynd af Einari Vilhjálmssyni náði Sósi á dögunum af kappanum er hann keppti á Ólympíuleikum símeiddra á eyjunni Mön. Einar kastaði vel yfir 2 metra á mótinu og er í stöðugri framför að eigin sögn. Er Sósi benti gamalmenninu á að Charlie Sheen hefði nú kastað upp lengra fyrir skemmstu, þá sturlaðist kappinn og veinaði "gull, silfur, brons bara pínu pons" svo undirtók í spjótinu, hattinum og verðlaunagripunum.
Loksins, loksins er hún komin!Allflestir landsmenn hafa nú beðið í nokkra mánuði með önd í hálsinum eftir nýju bókinni hennar Tobbu Marínós. Bókin sú atarna er nú komin í búðir og hefur Sósa verið sagt að fólk verði ekki fyrir vonbrigðum með bókina. Í bókinni fer Tobba yfir siðareglur sem allar alvöru dömur ættu að hafa í huga í samskiptum sínum við hitt kynið. Tobba fer t.d. í smáatriðum yfir það hvernig sjúga eigi lakkrísrör á fyrsta deiti, hvernig höndla eigi karlmannspung á þriðja deiti osfrv. Þetta er bók sem enginn órakaður ætti að láta fara fram hjá sér.
miðvikudagur, nóvember 10, 2010
Sósi fór í ræktina í vikunni sem er nú ekki í fáar sögur færandi. Þar heyrði hann á tala tveggja próteindúnka sem höfðu verið á hænsnaveiðum um síðustu helgi. Læt hér fylgja samtal þeirra á milli.
"Hvað segiru, var farið á rjúpu?"
"Já, skelltum okkur nokkrir félagarnir um síðustu helgi"
"Var eitthvað af fugli?"
"Já, við sáum einn 18 fugla hóp og svo tvo eins fugla hópa.
Við skutum allar úr eins fugla hópunum"
"Hvað segiru, var farið á rjúpu?"
"Já, skelltum okkur nokkrir félagarnir um síðustu helgi"
"Var eitthvað af fugli?"
"Já, við sáum einn 18 fugla hóp og svo tvo eins fugla hópa.
Við skutum allar úr eins fugla hópunum"
Snorri í Eden grínast í guðsgrænni náttúrinni!Hinn lífsglaði kærleikssnúður og frændi guðs almáttugs Snorri í Eden, framdi á dögunum ansi skemmtilegan gjörning á Klambratúninu í Reykjavík. Snorri sem kallaði gjörninginn "Góðærið tekið í görnina" sagði við Sósa.is að þetta hefði að öllu leiti tekist vel fyrir utan smá svöðusár á pung. Hér til hliðar má sjá Snorra með lilla ven á kafi í púströrinu á Range Rover.
Sósi gat ekki annað en spurt Snorra hvort að þetta væri nú ekki hálf kjánalegur gjörningur, en Snorri brást reiður við og veinaði á Sósa "Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við" svo undirtók í korselettinu og Klambratúninu.
Nautheimskur vörubílsstjóri bíður sig fram á stjórnlagaþing!Sturla Jónsson oft kenndur við vörubíl hefur ákveðið að bjóða krafta sína fram á stjórnlagaþingi. Sturla sem hefur verið greindur sem sturlaður hefur gengið til hinn ýmsu starfa í gegnum tíðina. Hann hefur t.d. keyrt trukk og komið fram sem trúður í barnaafmælum svo fátt eitt sé nefnt. Hér til hliðar sjáum við myndir af Sturlu, annars vegar sem trukk og hins vegar sem trúðs.
Eva Joly hyggur á heimsyfirráð!Sósa voru að berast þær fregnir núna ekki alls fyrir langa löngu að hvítflibbaraðmorðinginn Eva Joly hyggði á heimsyfirráð hvorki doldið né minna. Eva sem hefur verið í felum í helli í Andalúsíu síðastliðna 3 mánuði gerði þetta kunngjört á blaðamannfundi sem hún hélt ofan á jarðarkúlunni skömmu fyrir hádegi í hádeginu.
Sósi fékk að smella mynd af kvikindinu þar sem hún læsti krumlunum í Evrópu og Asíu og öskraði á bjagaðri fönsku með dönskum hreim svo undirtók í himingeimnum "heimsyfirráð eða dauði". Sósa rann kallt vatn milli rifs og rifja er hann horfði vanmáttugur á gjörninginn.
Predator lokar Bláfjöllum!Nú er bæjarfógetinn Jón Gnarr búin að gefa það opinberlega út að hann ætli að sjá til þess að Bláfjöllunum okkar verði lokað í svona ca. tvö ár. Hvað er fógetapredatorinn eiginlega að hugsa, veit skepnan ekki að skíðaiðkun er allra meina bót? Sósa finnst að predatorinn ætti frekar að loka öllum bókasöfnum í borginni enda fær fólk bara í bakið af öllum þessum lestri.
fimmtudagur, febrúar 04, 2010
miðvikudagur, maí 06, 2009
Bin Laden er fundinn!Hinn skeleggi og dagfarsprúði hryðjuverkamaður Osama Bin Laden er loks fundinn eftir mikla og víðtæka leit að kauða í mörg ár. Bin fannst við uppgröft á fornum Azteka minjum og var hinn hressasti er hann steig upp úr moldarhrúgaldinu. "Jesus, finally you find me you moterfuckers" á Bin að hafa sagt er hann sá bjargvætti sína. Hann á síðan að hafa klórað sér letilega í pungnum og ætlað að rölta í burtu en varð ekki kápan úr þeirri læðu og var færður í járn.
Silfrið heima í stofuHinn skeleggi afturhaldskommatittur Egill Hengjason hefur tekið þá rökréttu ákvörðun að Silfrið verði í framtíðinni tekið upp í stofunni heima hjá honum. Þessa ákvörðun tók Egill eftir að hann festist í útidyrahurðinni heima hjá sér og hafði setið þar fastur í nokkra daga og var farinn að lykta eins og gráðostur á túr. "Ekki hætti ég að éta" öskraði Hengjason á blaðamann Sósi.is er hann óskaði eftir skýringum á breyttum upptökustað Silfursins svo drundi í öllum silfurbúnaði í nágrenninu.
þriðjudagur, mars 10, 2009
Von Dirty enn í felum!Þessa símamynd fékk Sósi senda fyrir skömmu af Von Dirty einhversstaðar í útlöndum að fela sig fyrir kreppunnni. Það virðist vera alveg sama hvernig kappinn reynir að dulbúa sig, alltaf skal hann þekkjast á útrásartönnunum sem hann keypti sér fyrir hlutabréfagróða í góðærinu. Sósi þollir að veðja efri góm upp á það að vefjarhötturinn á höfði kauða er smekkfullur af gjaldeyri eða einhverju verra sem þolir ekki dagsins ljós.
Von Dirty, komdu heim og skilaðu gjaldeyrinum sem þú stalst frá hinum vammlausu!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)








