föstudagur, apríl 15, 2005


Mamma er búin að vera á tölvunámskeiði síðastliðna daga og hefur tekið heilmiklum framförum. Þessa mynd tók ég af henni í matarboðinu á Miðvangi í gær. Posted by Hello


Lúxusfeðgar á ferð og flugi!


Blaðamenn Séð og Heyrt náðu mynd af Lúxusfeðgum er þeir voru á leiðinni út, myndin mun birtast undir fyrirsögninni "Lúxusfeðgar á blússandi uppleið" í næsta tölublaði samkvæmt áreiðanlegum heimildum heimildarmanna Sósa.is. Posted by Hello


Þetta er náttúrulega ekki í lagi! Posted by Hello


Pabbi tók eina rosaflotta mynd af mér á leiknum. Ekki er um að kenna bjórdrykkju því það var ekki seldur bjór á leiknum. Ég er farin að hallast að því að hann sé farinn að sjá verulega illa en neiti að viðurkenna það. Myndin að ofan segir allt sem segja þarf. Posted by Hello

Stadium de Olympic í Munchen, Bayern í stórsókn. Posted by Hello
Lúxusfeðgar í lúxusferð!


Ég og pabbi brugðum okkur á leik í meistaradeildinni í vikunni. Fórum að sjá Chelsea spila við Bayern Munchen í Munchen. Það var mikil skemmtun og góð. Ferðinn einkenndist af miklum lúxus þar sem feðgarnir ferðuðust á fyrsta farrými jafnt á láði sem legi. Matfanga var leitað á dýrustu veitingastöðum Munchenborgar og ekki þurftum við að leita lengi, því hinum megin við hornið á lúxus hótelinu þar sem við gistum var líka þessi dýrindis Schnitscel staður þar sem boðið var upp á lúxus 800 gr Schnitscel sneiðar á verði sem er ekki fyrir hvern sem er að punga út fyrir. Vorum í extra lúxus sætum á vellinum þar sem svartir þjónar báru í okkur eðal bjór og lúxus pylsur kenndar við Bratwurst von Baumgartner. Okkar lið sem er nokkurs konar lúxus lið eins og við feðgarnir vorum í þessari ferð, rúllaði auðvitað upp hinu arfaslaka lið Bayern og tóku ekkert aukalega fyrir það enda á lúxus launum. Enduðum síðan ferðina með því að fá okkur drykk/i á lúxushótelinu þar sem fremsti píanósnillingur veraldar Emmel von Cliderman spilaði ljúfa tóna fram eftir nóttu. Nokkrar gleðikonur voru á barnum þetta kvöld, og reyndu þær að tæla lúxusfeðgana með sér í ljúfa leiki, en þeim varð ekki kápan úr því klæðinu, enda lúxusfeðgar þekktir fyrir eitthvað allt annað en lauslæti og saurlífi. Héldum glaðir í bragði heim á leið daginn eftir á fyrsta farrými, þar sem eðal flugfreyjur struku á okkur vangann og stjönuðu við lúxus feðga eins og mest þær máttu, enda ekki um neina meðal Jóna þar á ferð. Posted by Hello

fimmtudagur, apríl 14, 2005


Það er bloggkrísa í gangi, engin bloggar neitt lengur svo að ég er að spá í að leggja þessa síðu niður. Ekkert gaman að blogga aleinn, Siggi Atla er sá eini sem bloggar eitthvað að viti. Ég er farin í verkfall og hananú.  Posted by Hello

Okkar ástkæri Bubbi Morthens hefur höfðað mál á hendur hinum geysivinsæla sjónvarpsmanni Bubba Byggir eða Bubba Birgis eins og margir af eldri kynslóðinni kalla hann. Bubbi segir að það sé aðeins pláss fyrir einn Bubba á markaðnum og vill því að Bubbi Byggir breyti fornafni sínu ella dauður liggja. "Ég slæ hann í rot" sagði Bubbi við blaðamenn er hann var inntur eftir því hvað hann ætlaði sér að gera ef Bubbi Birgis færi ekki að tilmælum hans. Ekki náðist í Bubba Byggir vegna málsins, en blaðafulltrúi hans lét hafa eftir sér að Bubba Byggir væri ekki skemmt. Valti og skófli góðir vinur Bubba Byggir tjáðu blaðamönnum að þeir tækju af fullri hörku á Bubba ef hann léti sjá sig í bænum. Posted by Hello


Gott fólk, það er búð að velja nýjan páfa!! Sósi er auðvitað fyrstur að birta mynd af honum, veskú. Posted by Hello

fimmtudagur, mars 31, 2005


Alveg er það með ólíkindum hvað hann Þorgeir eldist vel, sjáið kallinn, hann er eins og nýsleginn túskildingur. Annars hefur þetta lengi loðað við landfræðingslýðinn, fallegir kroppar með eindæmum og æskuljóminn hreinlega geislar af þessum andskotum. Við á Sósi.is óskum Þorgeiri til hamingju með skrokkinn og nýja lookið og vonum að helvítið haldi koolinu allt til dauðadags. Posted by Hello

miðvikudagur, mars 30, 2005



María og Oliver keyptu sér nýja íbúð í Nice í fyrra. Assgoti hugguleg íbúð, hátt til lofts og vítt til veggja. En það er einn galli á gjöf marðar og hann er sá að það mjög lítið útsýni úr íbúðinni, sérstaklega úr eldhúsinu. Posted by Hello

Ég er búin að hringja og hringja í Maríu systur í Frakklandi í algerum tryllingi síðastliðna daga. Það virðist vera eitthvað helvítis ólag á símkerfinu þarna úti! Posted by Hello


Eitthvað gengur illa hjá stórvini mínum honum Sigga galdrakarli að koma saman þessari galdrasýningu fyrir vestan. Grey kallinn hefur á átt í stökustu vandræðum með að finna fjármagn til þess að halda rekstrinum gangandi, svo ekki sé talað um uppbyggingu á nýju safni í Bjarnarfirði. En Sigurður deyr ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn. Siggi hefur nefnilega tekið á það ráð að ráðast með kjafti og klóm inná flösku- og dósamarkaðinn sem hingað til hefur verið einokaður af íþróttafélögum og tælenskum draugum sem sveimað hafa um í húsagörðum höfuðborgarinnar íbúum hennar til mikillar skemmtunar og yndisauka. Siggi segir að nú sé mál að linni og að hann geti hreinlega ekki setið á honum stóra sínum lengur, og segist ætla að uppræta þá spillingu sem hefur verið á markaðnum. "Þessir slordónar og andskotar hafa skipt markaðnum niður á milli sín eftir hverfum á leynilegum fundum sem haldnir hafa verið í gömlum lýsisgrútartanki í vesturbænum. Þeir hafa þannig setið einir að kjötkötlunum og safnað að sér auði bist og bast. En nú er mál að linni og ég ætla að taka til á þessum markaði eins og mér einum er lagið, ég mun koma eins og stormsveipur inná markaðinn svo eftir verður tekið". sagði Siggi við blaðamann Fréttablaðsins þar sem hann var að safna flöskum í Þingholtunum (gullni þríhyrningurinn) svo halda megi áfram þeirri miklu uppbyggingu sem verið hefur á Ströndum í kringum galdasýningarnar á Hómavík og í Bjarnarfirði. Siggi hefur nú tekið upp viðurnefnið Siggi Dós, en eins og flestir muna þá gekk Siggi lengi undir nafninu Siggi flaska enda alla tíð fundist sopinn góður. "Mér finnst þetta eiginlega bara fyndið enda lítill munur á dós og flösku, því allt verður þetta að ösku" sagði Siggi kampakátur að lokum, skellti í góm að hætti Strandamanna og strunsaði í burtu með dósir og flöskur í massavís niður Njarðargötuna í átt að Njarðargötu 25, því þar búa víst auðkýfingar sem henda öllu steini léttara beint út í tunnu, flokka hvorki né skila, svei attann. Posted by Hello

þriðjudagur, mars 29, 2005



Ég og Kela fórum á Stuðmenn á fimmtudaginn og skemmtum okkur framar vonum. Mættum snemma í Leifstöð (11.30) og ætluðum að vera við öllu búin. Gerðum ráð fyrir að skríllinn mundi mæta snemma og byrja að hella í sig öl og meððí. Þegar við mættum á staðinn þá var engin í Leifstöð, bara við og einhver flækingshundur sem ráfaði þarna um í leit að einhverju ætiliegu. Við létum það þó ekki á okkur fá og gengum í það að tékka okkur inn. Það gekk ekki áfallalaust fyrir sig, því Rakel var ekki skráð með vélinni og því góð ráð dýr. Rakel sagði því kassadömunni að hún væri Loðmfjörð og þá var ekki að sökum að spyrja, daman á kassanum fór að afsaka sig og sagðist myndi redda þessu með því að henda annarri konu út af farþegalistanum sem hét Hulda. Við komumst því að lokum við illan leik inn í flugstöð og prísuðum okkur sæl á að komast út. Við fórum náttúrulega beint á barinn eins og góðum íslendingum sæmir, við vorum fyrst þannig að við fengum tvo fyrir einn, ákváðum því að kaupa strax sex, þannig að við fengum tólf. Enn bólaði ekkert á neinum Stuðmannaþyrstum Íslendingum og okkur farið verulega að lengja eftir félagsskap enda fyrir löngu orðin hundleið á hvort öðru. Eftir þónokkra bið á barnum sáum við fyrsta íslenska kollinn birtast upp úr rúllustiganum. Nú fór loksins að færast fjör í leikinnn (það héldum við allavega), einn og einn nálgaðist nú barinn með augnaráði drykkjusjúklingsins og maður var farinn að kannast við landann. En landinn er ekki við sama heygarðshornið og hann var hér á árum áður, því flesti fengu sér bara einn bjór og síðan út í vél. Í vélinni var allt með ró og spekt mest alla leiðina, fyrir utan það að Harpa (fyrrverandi hans næstum því ástmögurs Íslands) var með dólgshátt við vin okkar Rakelar sem sat henni við hlið. Hún gaf honum meira að segja svo allsvakalega undir fótinn að það stór sá á honum. Þegar við lentumt á Luton, var brunað sem leið lá í taxa til London svo að við misstum nú ekki af tónleikunum því klukkan var orðin ansi margt. Komum á hótelið seint og um síðir og smelltum okkur þar í partígallann og skelltum í okkur einum GOGT, og svo öðrum, og svo einum til, svona til þess að hita okkur upp. Héldum síðan af stað frá hótelinu í bleikum Rolls Royce með þotuliði Íslands öll í bleikum smókingum í áttina að Royal Albert Hall sem skartaði sínu fegursta þegar við mættum á svæðið. Þar fyrir utan voru einhverjir Íslenskir dónar að taka myndir svo ég lamdi þá alla í hausinn með rándýru kampavínsflöskunni sem ég hafði tekið með mér úr rándýra Rollsinum (meira helvítis prumpuliðið þessir slordónar frá Íslandi). Við mingluðum síðan í þónokkurn tíma við auðjöfrana sem slóu sér á lær og sögðu tröllasögur og lygasögur úr viðskiptalífinu á milli þess sem þeir svolgruðu rándýrt bleikt kampavín úr plastglösum. Við vorum náttúrulega með miða í eitt af "boxunum" eins og jöfrarnir kölluðu lúxus stúkurnar þar sem kóngafólkið situr venjulega. Tónleikarnir fóru vel af stað og stuðið stigmagnaðist eftir því sem fleiri lög voru spiluð. Það var frítt að drekka og éta í boxunum þannig að við þömbuðum stíft og bruddum kokteilpinna af áfergju, enda ekki vön því að neyta flotinu þó ókeypis sé (hmm). Eftir tónleikana var síðan partý í kjallaranum þar sem pöpullinn minglaði við auðmenn Íslands og það fór allt mjög vel fram. Að vísu var loftræstingin biluð og nokkrir féllu í ómegin, en það kom ekki að sök því það fólk hefði hvort eð er fallið í ómegin af drykkju, bara seinna. Síðan héldum við í annað eftirpartý sem var einungis ætlað auðmönnum Íslands og fylgisveinum þeirra. Þar var síaðn sungið og trallað fram eftir nóttu. Haldið var áfram að tralla þegar upp á hótel var komið og ekki hætt fyrr en Bretinn skellti í lás á barnum.. Nú var líka komið nóg af sukki og svínaríi og auðmenn Íslands ásamt lagskonum og skósveinum héldu til hvílu í sæluvímu eftir velheppnaða tónleika og partýstuð. Posted by Hello

miðvikudagur, mars 23, 2005



Ótrúlegar þessar stelpur! Posted by Hello

Fimleikasamband Íslands hélt sitt árlega íslandsmeistarmót í fimleikum um síðustu helgi. Þar sigraði þetta par í frjálsum æfinugum á dýnu! Posted by Hello


Jói hringdi í mig í morgun og sagði að Jórunn væri alveg úti að aka. "Hún bara kann alls ekki að keyra bíl" sagði hann og sendi mér þessa mynd sem hann tók með nýja myndavélasímanum sínum af bílnum hennar Jórunnar, lagt á mjög svo undarlegum stað skammt frá Bautanum. Posted by Hello

þriðjudagur, mars 15, 2005



Nú hafa aðstandendur hinna geysivinsælu bíómyndaseríu um galdrastrákinn Harry Potter fengið nóg af leikaranum sem farið hefur með aðalhlutverkið í seríunni. "Drengurinn er óstýrilátur, smeðjulegur, ófyndinn, leiðinlegur og bara á allan hátt viðbjóðslegur, og þess vegna höfum við ákveðið að skipta um aðalleikara" sagði framleiðandi myndanna á blaðamannafundi um daginn. "Við höfum legið yfir myndum og starfsferilskrám umsækjenda vegna hlutverksins í hátt á þriðju viku, og höfum komist að þeirri niðurstöðu að hinn fjölþreyfni strandamaður Sigurður Atlason hneppi hrossið. Hann hefur allt sem til þarf fyrir hlutverkið. Hann er myndarlegur, smágerður, íturvaxinn og svo er hann líka rammgöldróttur. Til að byrja með þá ætlum við að endurútgefa Fangann frá Azerbadzjan á dvd í Þýskalandi, þar sem hann er hvað frægastur." sagði Liebermann við blaðamenn er þeir inntu hann eftir því hver hefði hreppt hlutverkið. "Það kom mér þægilega á á óvart er herra Liebermann hringdi í mig fyrir um mánuði síðan. Ég hef svo sem stefnt að því allt mitt líf að verða frægur leikari og nú er sá draumur að rætast. Ég hef alla tíð lagt hart að mér við æfingar og hef tekið þátt í uppsettningu á allskyns vitleysi, í þeim tilgangi að vekja athygli og nú hefur allur þessi vitleysisgangur sannarlega dregið dilk á eftir sér" sagði Sigurður á blaðamannafundinum og vildi koma til skila þökkum til allra þeirra vitleysinga sem hann hefði kynnst á ferlinum. Diddi draugur eind og Siggi hefur margoft verið kallaður af samferðamönnum sínum, sendi Sósa coverið af nýja dvd disknum sem gefinn verður út í Þýskalandi nú um páskana. Megi Diddi draugur lengi lifa sem hinn aldraði Harry Potter!Posted by Hello


Jón Jónsson athafnabóndi hafði samband við mig áðan og sagði mér að hann væri ekki par sáttur að ég væri að éta upp fréttir úr öðrum miðlum og posta þeim á bloggsíðuna mína. Það væri ekkert annað en fréttastuldur og menn hefðu nú verið hengdir fyrir minna en í sínu umdæmi. Hann bað mig vinsamlega að gæta fyllstu varúðar í nærveru sálar og hugsa aðeins um orðstír þeirra sem verða fyrir barðinu á óstýrilátum áhugabloggara að sunnan eins og hann orðaði það. Ég ætla að taka þessar ábendingar Jóns til alvarlegrar athugunar, en get samt ekki setið á mér og postað þessari mynd af Jóni sem tekin var af honum við opnun sauðfjárssetursins í fyrra. Jón var þar í essinu sínu og fór hreinlega á kostum þegar hann opnaði sýninguna ásamt lagskonum sínum sem hann fékk sendar að sunnan til þess að flikka aðeins uppá samkomuna eins og hann sjálfur orðaði það. Eiginkona Jóns var ekki hrifinn af þessu uppátæki hjá honum og lét hann heyra það þegar heim var komið að sögn sameiginlegs vinar þeirra hjóna. Jón hefur síðan þá dvalist í helli skammt frá útihúsunum á bænum ásamt drósunum að sunnan, en það var ekki hægt að senda þær í bæinn sökum mikillar þoku á heiðinni sem ætlar víst seint að létta. Samkvæmt nýjustu fréttum að vestan, þá er þríeykið ennþá í hellinum og á þaðan ekki afturkvæmt til byggða fyrr en birtir til á heiðinni og hjá húsfreyjunni á Kirkjubóli. Posted by Hello


Viðbjóðslega kellingu rak á fjörur Strandamanna nú um helgina, segir í hinu virta veftímariti Strandir.is. Þar er viðtal við Jón Jónsson akuryrkjubónda á Kirkjubóli sem fann kvikindið kviknakið í fjöruborðinu. "Ég var á einhverju helvítis fylleríi með strákunum sem standa með mér að sauðfjársetrinu í gærkvöldi og var því hálfryðgaður þegar ég vaknaði í morgunsárið. Ég ákvað því að skella mér til hressingar í göngutúr í fjörunni sem leikur við túnfótinn hér á bænum. Þegar ég svo kem niður í fjöru þá er þetta það fyrsta sem blasir við mér. Ég hef hvorki fyrr né síðar rekist á jafn ljóta kellingu um ævina og hef ég þó hitt þær margar. Ætli þetta helvítis kvikindi sé ekki að sunnan, sennilega úr Garðabænum." sagði Jón við blaðamann Mogganns og smellti í góm að hætti strandamanna. Er blaðamaður innti Jón eftir því hvað hann ætlaði að gera við kvikindið, þá svaraði hann því til að hann myndi sennilega geyma hana í útihúsunum eitthvað fram á vorið. "Það er svo sem aldrei að vita hvaða gagn maður getur haft af þessu helvíti þegar fram í sækir." sagði Jón að lokum og hló þvílíkum hrossahlátri að undirtók í fjöllunum. Posted by Hello