miðvikudagur, september 10, 2008

Heimurinn að farast?

Er Sósi kom heim eftir vinnu í gær, biðu allir fjölskyldumeðlimirnir í hurðargættinu og æptu "pabbi, pabbi er heimurinn að farast?" "Hvurslags vitleysa er þetta í ykkur" sagði þá Sósapabbi og stappaði illur niður fótunum. "Hvurslags endemis þvæla er þetta og hvaðan er þessi þvæla uppsprottinn?". "Mamma sagði okkur að það gæti allt eins verið að heimurinn myndi enda í dag er strákarnir hjá LHC (Large Hadron Collider) settu öreindahraðalinnn sem verið var að byggja í Sviss í gang". "Þið vitið nú hvernig hún mamma ykkur getur látið" svaraði þá Sósi ábúðarfullur, sló sér á lær og smellti góðlátlega í góm til þess að róa krakkagemlingjana sem greinilega voru í mikili geðshræringu yfir yfirlýsingu móður sinnar. Sósi skammaði Lommukvikindið seinna um kvöldið, háttaði hana niður í rúm og flengdi hana létt á þjóhnappana í refsingarskyni fyrir ósannindin. Þó er það öllum ljóst að heimsendir verður einhvern tímann, en hvort hann sé í nánd eða ekki er allsendis óvíst. Þessi mynd hér til hliðar var tekin af Spútnik 3 er öreindahraðallinn var settur í gang í morgun, eins og sjá má þá er ekkert að óttast, alls ekkert.

föstudagur, september 05, 2008

Skítadjobb
Þessir blökkusurtir, maður lifandi!
Þessir Arabar eru algjörir Arabar!

fimmtudagur, september 04, 2008

Ramses II heimtu úr helju

Hinn spengilegi flóttamaður Ramses II hefur loksin verið heimtur úr helju úr vítisvist á Ítalíu að því er fréttaritari Sósa á Keflavíkurflugvelli tjáði honum á dögunum. Ramses var víst illa til reika við komuna til Keflavíkur, tekinn í andliti með skerta heyrn og illt í hálsinum. "Fjandans spagettí maulandi Ítalaskrattarnir voru búnir að dubba kallinn upp eins og hvern annan hirðingja" sagði Venesúellen Einarsdóttir velgjörðarkona Ramses úr Hvítatunnusöfnuðinum hinum síðari, greinilega guðslifandi feginn að Ramses væri komin heim til Íslands eins og hún orðaði það. Ramses sjálfur frábað sér öll viðtöl við komuna en kraup á kné og sleikti fósturjörðinu svo fast að það stórsá bæði á henni og Ramses sem fékk í þokkabót ullabjakk á tunguna að launum fyrir gjörninginn. Ramses þó!
Stemmari í Laxveiðitúr

Þessa mynd sendi "gæd" úr Norðurá Sósa á dögunum. Á myndinni má sjá greiningardeild Kaupþings eins og hún leggur sig að sulla í Glanna sem er einn flottasti veiðistaðurinn í Norðurá. "Þetta voru mega hressir gaurar og til í allt fyrir réttan péning" sagði þessi ónafngreindur "gæd" við Sósa en vildi taka það sérstaklega fram að ekkert ósiðlegt hefði átt sér stað þarna í hylnum "þeir voru bara að skemmta sér blessaðir drengirnir, enda kannski ekki vanþörf á eftir mikið fall á mörkuðum undanfarna mánuði". Ekki fylgdi sögunni né myndinni hvort eitthvað hefði komið upp úr hylnum þann daginn en það er líka aukaatrið.









Litli og stóri hittast í fyrsta sinn

Hinn heimsfrægi leikari Sveinn Eiðsson (frændi Lommunar) og hinn skeleggi útvarpsmaður Þorgeir Ástvaldsson hittust í fyrsta sinn á dögunum í partýi hjá þeim síðarnefnda. Það væri þó ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Þorgeir hefur verið aðdáandi Sveins númer eitt í áraraðir. "Það var geðveikt að rekast á Svein í þessu partýi því ég hef alltaf litið upp til þessa manns eftir að hann vann leiksigur í myndinni Óðal Feðranna hér um árið" sagði Þorgeir mjóróma í stuttu viðtali við Sósa á dögunum. Sósa lék einnig forvitni á að vita hvað væri á döfinni hjá kauða og spurði hann því að lokum út í það. "Ég er að skipuleggja árshátíð putalinga ásamt Halla vini mínum og það fer allur minn tími í það þessa dagana" sagði Þorgeir hrysti sig og byrsti, ruggaði sér í lendunum og sneri sér í hring.
Hér til hliðar sjáum við Þorgeir taka hróðugur í fingurinn á Sveini sem lætur sér fátt um finnast, enda mökkölvaður og illa fyrir kallaður eins og venjulega.
Rickshaw saman á ný?

Heyrst hefur að hljómsveitin Rickshaw sem sló svo eftirminnilega í gegn er nýrómantíkin stóð sem hæst, ætli sér að taka upp þráðinn á nýjan leik. Sósi setti sig því í samband við söngvara hljómsveitarinnar sálugu Richard Scobie og kallaði þegar í stað eftir viðbrögðum. "Já það er rétt, okkur fannst komin tími til að dusta rykið af hljóðfærunum og færa landanum flunkunýtt efni í bland við gamalt. Við ákváðum einnig að bæta við nýjum meðlim í hljómsveitina til þess að poppa þetta svolítið upp. Sá hinn heppni heitir Magnús Ríkharðsson og var gríðalega vinsæll plötusnúður í Hafnarfirði í denn. Við bindum miklar vonir við kappann enda svaðalegur diskótrúður" sagði Scobie eiturhress, hrissti stífspreyjaðan makkann og sló taktinn í næsta lag. Maggi Ríkharðs er annar frá vinstri á myndinni hér til hliðar íklæddur ofbirtugulu vesti og kvartbuxum í stíl.


fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Útvarp hjá Lommukvikindinu!
Adolf Bush

Nú fer þessi bráðum að segja af sér, guði sé lof segir Sósi nú barasta.
Er brasilískt málið?
Þessar kellingar mar!
Áreiðanlegur vatnshitamælir!
Þarf að segja meira?
Silfurpungarnir komnir heim!

Jæja, þá eru silfurpungarnir komnir heim eftir frækilega för á Ólympíuleikana í Peking með silfurpening í farteskinu. Það er óhætt að segja að guttarnir hafi komið skemmtilega á óvart með þessari mögnuðu frammistöðu sem enginn átti von á nema þá kannski þeir sjálfir.
Sósi tekur undir með þeim sem segja að þetta sé mesta afrek sem unnið hefur verið í íþróttum á landinu til þessa. Það fór því vel á því að tekið var á móti drengjunum með pompi og prakt enda áttu þeir það fyllilega skilið. Strákarnir komu einnig skemmtilega á óvart er þeir siluðust niður Skólavörðustíginn á gömlum Scania vörubíl íklæddir appelsínugulum pungdulum veifuðu eggjandi til æstra aðdáanda sem réðu sér ekki fyrir kæti yfir uppátækinu.
Hér til hliðar sjáum við Loga Geirsson, Ásgeir Örn og fyrirliðann Ólaf Stefánsson í broddi fylkingar, pungsveitta og löðrandi í rjúkandi Ólympíufíling.

P.S. Hvernig væri nú að grafa djúpa holu setja Valgeir Guðjónsson þar ofan í, og moka yfir. Jesús minn hvað maðurinn er eitthvað misheppnaður. Hverjum datt eiginlega í hug að fá þennan mann til þess að stýra fögnuðinum við Arnarhól?
Ja, hvur rækallinn, hvílík drusla!

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

100 þúsund prósenta verðbólga í Simbabwe

Mussu Múgabe hefur tekist það sem engum öðrum hefur tekist, en það er að koma verðbólgu tölum lands síns upp í 100 þús. prósent, segi það og skrifa og dreg ekkert undan. Fyrir skemmstu voru fyrstu 10 milljón dala seðlarnir prentaðir í landinu.
Þetta ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart, enda skilur Múgabe ekki mannamál. Múgabe komst til valda í Simbabwe er hann ung górilla rakst fyrir tilviljun á fyrrverandi ríkisstjórn landsins sem var við bananatínslu í grennd við heimili hans og át hana í heilu lagi. Upp frá því tók Múgabe ásamt aðstoðarmönnum sínum að herja á mannabyggðir og tók í kjölfarið við stjórnartaumunum. Simbabwe hefur æ síðan verið bananalýðveldi í orðsins fyllstu merkingu. Hér til hliðar sjáum við Mussu Múgabe stara á verðbólguna úr fylgsni sínu, glottandi við tönn.

þriðjudagur, ágúst 26, 2008

María og Olivier loks pússuð saman

Þá er það loksins orðið opinbert, María systir og Olivier hinn franski eru loksins búin að gifta sig. Giftingin var haldin á Búðum á Snæfellsnesi og tókst í alla staði mjög vel, bæði athöfnin og veislan.
Sósa brá þó nokkuð í brún er hann sá kjólinn sem systir hans hafði valið til þess að brúka sem brúðarkjól en hann var í efnisminna laginu (María þó!)

fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Nýr meirihluti í borginni!

Svei mér þá alla mína daga, nú rétt í þessu var verið að mynda fjórða meirihlutann á aðeins tveimur árum. Sósi á hreinlega ekki til orð yfir þessari hringavitleysu en er þó sáttur við að búið sé að bola Ólafi F. í burtu og vonar að Jakob Frímann fari sömu leið. Sósa barst til eyrna fyrr í dag að Ólafur F. sæti einn heima hjá sér ruggandi sér í lendunum og snúandi sér í hring með veldissprotann í hendi og keðjuræksnið um hálsinn.