fimmtudagur, september 06, 2007


Catherine Zeta Jones?

Sósi rakst á þessa mynd á netinu um daginn, kallinn andaðist næstum því úr hlátri. Katarína Z Jóns my ass!

þriðjudagur, september 04, 2007


SEX-IDOL
Sósa var rétt í þessu að berast þessi sjóðheita mynd af Dabba Magg þar sem hann beið eftir því að komast að í prufur á nýjum raunveruleikaþætti sem sýndur verður á Stöð2 í vetur og ber nafnið SEX-IDOL. Samkvæmt þessari mynd þá á Dabbi alla möguleika á að verða fyrir valinu enda með línurnar í lagi. Davíð vildi ekki tjá sig um málið er Sósi fór þess á leit við hann en benti þess í stað á fjölmiðlafulltrúa sinn Sprelías Illugason. Er Sósi náði tali af Sprelíasi hafði hann þetta um málið að segja " Dabbi er náttúrulega eitthvað lasinn eins og marg oft hefur komið fram, ég hef ekkert annað um málið að segja" sagði Sprellinn og dæsti í símtólið.





Ægir Sigurgeirs búin að missa það!

Sósi á lagðist á hnúanna um daginn til þess að komast að því hvar hans aldni vinur Ægir væri niðurkominn. Síðast er spurðist til Ægis þá var hann við kennslustörf í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Það lá því beinast við að hefja leitina á heimasíðu skólans víðó.is. Þar komst Sósi að þvi að melurinn er þar ennþá við störf, en eitthvað hefur nú skolast til í höfðinnu á kallinum miðað við myndina sem kemur upp af honum á heimasíðunni. Eins og sést á myndinni hér til hliðar þá sýnir myndin Ægir á kennarastofunni þar sem hann situr við prjónaskap í Gene Simmons galla málaður í framan eins og gamla goðið. Sósi veit hreinlega ekki hvað hann á að segja annað en "Ægir, taktu þig saman í andlitinu og hættu þessum fjandans prjónaskap"

Veiðitúrar lítið breyst í aldanna rás

Þessa mynd sendi Svenni málari Sósa á dögunum með þeim skilaboðum að hún mætti með öngvu móti komi fyrir augu annarra en Sósa. Sósi hefur nú aldrei staðist mátið enda yfirleitt mátaður sjálfur eftir þrjá leiki og því tók hann þá ákvörðun að posta þessu helvíti á netið. Myndin sýnir ættföðurinn Sveinberg Árelíusson langa- langa afa Svenni í gæsaveiðitúr fyri lifandis löngu. Ekki nóg með það að kallinn skuli vera blindfullur, heldur er hann með tippalinginn úti á myndinni. Þessir veiðitúrar hafa greinilega ekkert breyst í gegnum tíðina!

fimmtudagur, júlí 12, 2007

Davíð og Guðný sendu Sósa þessa mynd í vikunni með eftirfarandi texta:

Sæl öllsömul, höfum það gott í sólinni í Portúgal, erum búin að gera margt og mikið og Davíð búin að fara nokkrum sinnum yfir strikið. Höfum ekki verið nógu dugleg að bera á okkur sólarvörn og höfum því roðnað meira en flestir í ferðinni.

Sólarsamba kveðjur úr sólinni,

Davíð og Guðný
Menn eru ekki bara í ruglinu í Rússlandi!

Siggi sonur Sósa spurði um daginn upp úr þurru "Pabbi, hvað varð um Sigga Síkó?"
Sósi hrökk í kút er hann heyrði þetta nafn og fékk gæsamús um allann kroppinn, sennilega vegna sinna fyrri viðskipta við fýrinn. Er gæsamúsin var farin af Sósi og mesta geðshræðslan runnin af honum fór Sósi að leyta lófanna að Sigga Síkó á netinu. Er Sósi sló inn nafnið "Siggi Síkó" á Google þá byrtist þessi mynd undir yfirskriftinni "Hardcore smoker, Siggi Síkó in his green plastic stalion uniform in a hunting trip in Yugoslavia" Hvurn grefilinn er Siggi Síkó að þvælast í veiðiferð í Júgóslavíu hugsaði Sósi með sér er hann sá þessa svakalegu mynd. Sósi sló því á þráðinn til Sigga til þess að fá nánari útskýringar á þessu hátterni. "Nú er ég hættur í öllu rugli, fluttur til Júgóslavíu og uni þar hag mínum vel. Þessi mynd var tekin er ég fór í svokallaðan bondage gum boot veiðitúr sem er mikið stundað í bænum sem ég bý í. Þá dressa menn sig upp í flotta gúmíbúninga og fara á villihesta veiðar. Túrinn endar síðan villtu stóðlífi með villihestunum og því betra að vera vel gallaður" sagði Siggi og bað innilega að heilsa öllum heima. "Ég er ekkert á leiðinni heim" galaði síðan Siggi í tólið með sinni barnslegu síkaretturödd og skellti á.

Vó Siggi, slaka aðeins á í ruglinu!

miðvikudagur, júlí 11, 2007

Rússneski herinn á ferð og flugi!

Þessi mynd náðist af rússneska hernum er þeir voru að færa stríðsvélar sínar á milli bæja. Svei mér þá ef þeir eru ekki komnir hringinn í tækninýjungunum.

Meira ruglið alltaf hreint þarna í Rússaríki!
Saga slær í gegn á bongótrommunni

Þessi mynd var tekin af Sögu sætu er hún barði bongótrommu í tryllingi á leikskólanum um daginn.
Hvað er eiginlega að gerast þarna austurfrá?


Djöfulsins fyllerí alltaf hreint þarna í Rússlandi!
Elli á hjólinu!
Elli sprelli og föruneyti eru nú stödd í einhverjum fjallakofa á Spáni. Þau eru nú búin að vera full uppá hvern einasta dag í meira en viku og partýið er rétt að byrja. Þessi mynd náðist af sprellanum er hann skaust út í búð að ná í meiri veigar handa þyrstu Íslendingunum á Costa del La Blanca De Nero El Mar þar sem fylleríshúsið stendur.
Meira andskotans fylleríið á þessu liði alltaf hreint!

föstudagur, mars 16, 2007

Sósi og Lommutetrið á ferð og flugi!
Sósi og Lomma eru búin að vera mikið á ferðinni síðustu vikurnar og enn á ný hyggjast þau skötuhjú leggjast í víking. Nú er ferðinni heitið til Courchevel í Frakklandi þar sem ætlunin er að renna sér á skíðum. Tilhlökkunin er gríðarleg enda í fyrsta skipti sem farið er til útlanda á skíði. Lomman ætlar að renna sér á tunnustöfum en Sósi ætlar sér að nýta sér nútímalegri græjur. Courchevel er á skíðasvæði er nefnist "The three valleys" og er að sögn stærsta samfellda skíðasvæði í heiminum. Jíha, djö.. hlakkar Sósa til.
Úmba úmba í London!

Sósi og Lomma skruppu í helgarferð til London um síðustu helgi ásamt Ella og Bíbí. Ætlunin var að fara fínt út að borða, drekka gin í tónik, fara á listasöfn og margt fleira, en ekki varð ferðalöngunum kápan úr því handklæðinu því ferðin varð að einu risastóru svalli vallí svo enginn fékk vönd við reyst. Svo mikið gekk á í ferðinni að farið var að örla á úmbarassasa er líða fór á ferðina. Föruneytið hitti síðan Jamaroquai á hótelbarnum og tókst með þeim góður vinskapur. Bíbí tók þessa mynd af kappanum hér til hliðar og sagði honum í leiðinni að hann væri algert gíng gang gúlli vúllí rassgat með þessa geggjuðu klippingu (hann lét henda Bíbí út).
Þetta var sem sagt alveg geggjuð gíng gang gúllí gúllí vassa ferð með smá dass af gíng gang gú og smá úmbarassasa.

mánudagur, mars 05, 2007

Ívar Webbster í slæmum málum!

Hinn snoppufríði blökkumaður Ívar Webbster var í gær handtekinn af lögreglunni á Ísafirði og stungið í steininn vegna illrar meðferðar á tönnum sínum. "Kallinn hefur ekki hirrt í sér tennurnar svo árum skiptir" sagði hinn skeleggi lögreglumaður Hjörtu Bender er Sósi sló á þráðinn vestur í morgun. "Það er ekki hægt að láta kallinn ganga lausann og geyfla sig framan í bæjarbúa. Lyktin út úr karlinum er eins og þegar lyktin gat orðið verst er síldarbræðslan var og hét" sagði Hjörtur enn fremur og vildi lítið annað um málið segja. Þessi mynd birtist í staðarblaðinu af Webster þar sem fólk var vinsamlegast beðið um að forðast hann eins og heitan eldinn ella lenda í svaðalegri andremmu.

Meira vesenið alltaf hreint á þessum blökkusu........

37 ára afmælisveisla Otto Tynes fór böndunum!
Hinn geðþekki og skeleggi auglýsingastrákur Otto Tynes hélt upp á 37 ára afmæli sitt um helgina með poppi og snakk. Sósa var að sjálfsögðu boðið í veisluna en gat ekki látið sjá sig vegna anna í veislu hjá Jórunni Loðmfjörð Pálsdóttur (43). Samkvæmt útsendurum Sósa.is fór víst allt úr böndunum í veislunni hjá Otto og fóru menn eins og Sprelías Illugason svo svakalega á skallarassgatið að annað eins hefur ekki sést (ekki einu sinni í Rússlandi). Endaði partýið með því að Davíð Magnússona fyrrverandi gítarleikari í E-X inu fór með alla strákana til Rússlands og þar eru þeir víst enn. Þessa mynd fékk Sósi senda í morgun frá AP fréttastofunni, en á henni má sjá Sprelías ásamt yfirmanni sínum í rússneska hernum á rassgatinu á leiðinni til Síberíu (Elli þó!). Elli sendi víst sms á Birnu sína í morgun og í því stóð "Er í Russlandi Birna mín, reikna með að koma heim með vorinu" Birna er víst brjáluð!

fimmtudagur, mars 01, 2007


"Ógislega töff í Blökkusurtalandi"

Sósa var að berast þær fregnir til eyrna að Lommukvikndið og Brynja væru hættar hjá Eddu útgáfu.
Sósi fór því á stúfana til þess að ná tali af þeim stöllum. Það reyndist þrautinni þyngri en að lokum fann Sósi þær í svörtustu Afríku að tína hrútaskít í bastkörfur. Sósa lék forvitni á að vita hvurs vegna þær hefðu hætt hjá hinu vel stönduga útgáfufyrirtæki og farið í hrútaskítinn, og kastaði því þessari spurningu fram, "hvað hefur hrútaskíturinn fram yfir heimsbókmenntir?". Ekki stóð á svari hjá þeim stöllum, "það er svo sem enginn munur, hrútaskíturinn heillaði bara meira" Stelpulufsurnar er síðan búnar að fara í lengingu að hætti innfæddra of fannst Sósa þær vera "ógislega töff".

föstudagur, janúar 12, 2007


Djöfuls fyllerí alltaf hreint þarna í Rússlandi!

Danmörk

Sósi og Lommukvikindið skruppu til kóngsins Köbenhavn skömmu fyrir jólin og tóku allann krakkaskrílinn með sér. Ætlunin var að fara í Tívolí, hafa það huggó og sleppa öllu búðarrápi. Ekki fór þó betur en svo enn að Lommukvikindið og sonur hennar Geðsiggi sáust varla í ferðinni vegna þess hversu sólgin þau eru í ný föt og bakkelsi. Héngu þau feðginin í Hannes og Smáritz allann liðlangann daginn og þess á milli úðuðu þau í sig bakkelsi og allskonar sælgæti svo þau hefðu næga orku til að halda áfram búðarrápinu. Þetta fór mjög í skapið á Sósa gamla og hékk hann því bara á börunum og góndi út í loftið. Þessi mynd var tekinn af Geðsigga þegar hann var með mömmu sinni í HM, kellinginn verslaði og verslaði á meðan Geðsiggi saug á sleikjónum af áfergju.

mánudagur, nóvember 06, 2006

Sósi heldu betur bætt á sig!

Þessi mynd náðist af Sósa í Borgarnesi fyrir utan gamla Alþýðubandalagshúsið þar sem hann var að gera sig klárann fyrir rjúpnaveiðitúr sem hann var að fara í með félögum sínum.

föstudagur, nóvember 03, 2006

Djöfuls fyllerí alltaf hreint þarna í Rússlandi.