"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
mánudagur, apríl 28, 2008
Þessi frétt er eiginlega ein sú hrikalegasta sem Sósi hefur lesið
"Austurríkismenn eru sem þrumu lostnir tæpum sólarhring eftir að þeim var tjáð að Jósef F., roskinn rafmagnsverkfræðingur, löghlýðinn og friðsamur góðborgari að því er virtist, hefði haldið dóttur sinni, Elísabetu F., í kynlífsánauð í tæpan aldarfjórðung í gluggalausu kjallarabyrgi undir einbýlishúsi sínu og eignast með henni sjö börn án þess að eiginkonu hans grunaði neitt.
Sérfræðingar lögreglunnar í Amstetten, um 130 kílómetra vestur af Vínarborg, hafa kannað fangabyrgið; nokkur þröng herbergi, eldhúskrók og salerni.
Leiðin inní byrgið liggur um þröngar dyr með öryggislás sem Jósef F. kunni einn að opna.
Eitt barnanna sjö, tvíburi, lést þremur dögum eftir fæðingu. Jósef F. brenndi líkið. Hann ól sjálfur upp þrjú barnanna, eiginkonan hélt þau óskyld fósturbörn, þrjú voru hins vegar um kyrrt hjá móður sinni í byrginu. Þau eru 19, 18 og 5 ára.
Þau hafa enga menntun fengið. Og höfðu ekki andað að sér útilofti eða séð sólarljós þar til fyrir viku að Kerstin, elsta dóttirin, veiktist og var flutt á sjúkrahús. Þá komst allt upp.
Elísabet F. hvarf 24. ágúst 1984, 18 ára. Nú er hún 42 ára. Móðir hennar hélt að hún hefði strokið. En þann dag dró faðir hennar hana ofan í byrgið, byrlaði henni róandi lyf, hlekkjaði hana og nauðgaði henni. Hún segir að Jósef F. hafi fyrst beitt sig kynlífsofbeldi þegar hún var 11 ára"
föstudagur, apríl 25, 2008
Gas, Gas!Það var skemmtilegt að fylgjast með fréttum í gær þegar allt ætlaði um kolla að keyra á bensínstöðinni við Rauðavatn, er trukkakallarnir voru að mótmæla því að þeir fá ekki að leggja sig í vinnunni og að þeir þurfu að borga fyrir bensínið sem þeir setja á bílana sína. Einkum var skemmtilegt að fylgjast með því er einn lögreglumaðurinn varð alvega gasalega pirraður og byrjaði að hrópa gas, gas, gas eins og það væri hans síðasta. Hér til hliðar sést vörður laganna vera að gasa mannskapinn við Rauðavatn alveg gasalegur.
Talsmaður snarvitlausra trukkabílstjóra Sturla nokkur Jónsson á kafi í eyturlyfjum?http://www.sigurfreyr.com/sturla.html#for
miðvikudagur, apríl 23, 2008
Tívolí Gudda er 36 vetra í dag!Hinn lífsglaði og eiturhressi hvítvínsdrykkjsúklingur Guðríður Indriðadóttir, sem oftast er kennd við Tívolíið í Hveragerði á afmæli í dag. Við hér á Sósi.is óskum Hvítvíns buddunni hjartanlega til hamingju með afmælið og stefnir Sósi á að drekka með hennni a.m.k gallon af þeim göruga drykk í kvöld af því tilefni og jafnvel segja nokkrar drykkjusögur í leiðinnni.
Til hamingju með daginn Tívolídruslan þín!
mánudagur, apríl 21, 2008
Á rassgatinu í ReykjarfirðiSósi fór ásamt fríðu föruneyti til Vestfjarða um helgina á snjósleða og hefur sjaldan farið í jafn skemmtilega ferð. Veðrið lék við okkur alla helgina, sól skein í heiði og mældist mesti vindstyrkur 0 m á sekúndu. Útsýnið af Drangjökli var því með mesta móti og ekki var laust við að það glitti í Grænland út við ysta sæ. Ferðalangarnir fóru meðal annars út að Hornbjargsvita, ofan í Hrafnsfjörð og niður í Reykjarfjörð þar sem menn týndu af sér spjarirnar og fóru á rassgatinu í sund. Mikil ljóstillifun var í lauginni og mátti sjá á botninum 100 ára gamla grænþörunga sem virtust unna hag sínum á þessum stað ákaflega vel. Myndin hér til hliðar var tekið við það tækifæri og ber góðan vinisburð um holdafar og ljósabekkjanotkun ferðalanganna.
Invisible ChildrenIn the spring of 2003, three young Americans traveled to Africa in search of such as story. What they found was a tragedy that disgusted and inspired them. A story where children are weapons and children are the victims. The "Invisible Children: rough cut" film exposes the effects of a 20 year-long war on the children of Northern Uganda. These children live in fear of abduction by rebel soldiers, and are being forced to fight as a part of violent army. This wonderfully reckless documentary is fast paced, with an MTV beat, and is something truly unique. To see Africa through young eyes is humorous and heart breaking, quick and informative - all in the very same breath. See this film, you will be forever changed.
Skylduáhorf segir Sósi, linkur á heimildarmyndina hér að neðan.
http://video.google.com/videoplay?docid=3166797753930210643&hl=en
föstudagur, apríl 18, 2008
Þorgeir Ástvalds og Halli dottnir í það?Þessi mynd náði Sósi af þeim dvergvöxnu kumpánum Þorgeiri Ástvalds og Halla kenndan við Ladda bróður sinn, á Ingólfstorgi í vikunni. Þar sátu þeir að sumbli og voru greinilega ekki í neinum skemmtanagír eins og þeir eru öllu jöfnu. "Það er bara búið að vera lítið að gera" sagði holan Halli er hann var spurður út í ástandið. Þorgeir var þögull sem gröfin, fitjaði einungis upp á nef sér og dró hendinni í gegnum sveittan makkann sem var býsna úfinnn eftir standandi fyllerí síðustu daga. "Andskotastu héðan í burtu blaðasnápur og láttu ekki sjá þig hérna framar" veinaði síðan Halli á Sósa er hann ætlaði að smella einni mynd af þeim félögum að skilnaði.
fimmtudagur, apríl 17, 2008
Von Dirty í slæmri klípuViðskiptamógúllinn Elijha Von Dirty komst í hann krappann á dögunum er hann sat fyrirlestur á viðskiptaþingi auðmanna í Jerúsalem. Elijha sem var sjálfur á mælendaskrá með erindi sem nefndist "How to make a million if you dont got a million and have to borrow it from another who has a million and is prepared to loan it so you can make a million" fékk fljúgandi stól í höfuðið er hann hafði lokið erindi sínu sem var átta klukkustundir í flutningi. Fólk í sal varð hreinlega hoppandi gramt eftir flutninginn og sakaði Vön Dirty um að hafa stolið erindinu af netinu. Margir sögðust kannast við erindið frá því í fyrra. Hér sést hvar Von Dirty er klipptur út úr stólnum sem endasentist ofan á höfuð hans.
Siggi Síkó gerir hreint fyrir sínum dyrumÞessi skemmtilega mynd náðist af hinum fáséða fagurkera Sigurði Síkó þar sem hann var á leið niður á Ríkisskattstjóra með allt sitt hafurtask til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Eins og flestir vita þá hefur Sigurður haldið vel utan um bókhaldið hjá sér eftir að hann gerðist sjálfstæður atvinnurekandi og safnað samviskusamlega öllum nótum er varða reksturinn í framsætið á bílnum sínum. "Ég ákvað náttlega að skila þessu inn þegar ég var hættur að geta skipt um gír. Náttleg búið að safnast soldið upp í gegnum árin" sagði Siggi við Sósa fyrir utan RSK, bullsveittur við að bera inn klepraðar nóturnar, glottandi með síkó við tönn.
fimmtudagur, apríl 10, 2008
Sumarstúlka iðnaðarins með smáar grænar baunir og rauðkál í glerumbúðum.Þessi mynd hér til hliðar, finnst Sósa vera fyndnasta mynd sem byrst hefur á Sósabloggi. Sósi var að spá í að skrifa langan leiðara að myndinni en tók síðan þá ákvörðun að gera það ekki enda algjörlega óþarfi. Það er ekkert annað að gera en að lesa textann við hlið myndarinnar og þá kemst maður í annarlegt ástand.
Sósa datt strax í hug Karíus þegar hann sá myndina fyrst, en Lomman líkist einnig Línu Langsokk ískyggilega mikið á myndinni. Þeim sem langar að fá frekari vitneskju um af hverju í andsk... Lomman lét hafa sig út í þessa vitleysu, er bent á að hringja í hana á milli 5 og 7 í kvöld en þá mun hún verða við símann.
Smellið á myndina svo þið getið betur lesið textann við myndina.
föstudagur, apríl 04, 2008
Viðskiptamógull slettir úr klaufunumViðskiptamógullinn og viðskiptamódelið Elijha Von Dörí var í hörkuformi á Kaffi Ólíver í gærkveldi, þar sem hann dansaði við kalla og kellingar upp um alla veggi í tilefni að opnun staðarinns.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sósa, vinnur Elijha nú að því að leggja niður samtökin "Gnauðar í rassi kvenna" því hann heldur því fram að bissness sé ekki fyrir neinar kellingar.
Karatebuxur til sölu hjá VinnufatalagernumGamli karatekötturinn Chuck Norris hefur hafið framleiðslu á karatebuxum sem hafa þá eiginleika að hægt er að taka mjög há karatespörk án þess að eiga það á hættu að rífa þær í klofinu. "Þetta er alger bylting fyrir handrukkara og svoleiðis hyski" sagði Beinteinn Búri sölustjóri Vinnufatalagersins er hann var inntur eftir eftirspurn eftir slíkum buxum á Íslandi. "Þær hafa rokið út frá því að við settum þær í sölu, enda mikið um handrukkanir í þessari krepputíð" sagði Beintinn að lokum og klýndi hælnum í andlitið á Sósa, svona rétt til þess að sýna honum virknina í buxunum.
Sjortari?Nú er það víst sjortarinn sem ríður öllum húsum þessa dagana. Gefin var út bók á dögunum sem inniheldur leiðbeiningar um hvernig maður taki einn slíkann og síðan skall á okkur könnun sem gerð var í Bandaríkjunum um að kynlíf ætti ekki að standa yfir í nema 3 til 15 mín, er það ekki sjortari? Spyr sá sem ekki veit.
Það er þó kannski einum of langt gengið að taka sjortarann úti í glugga eins og þetta par hér við hliðina, en þau eru kannski í lest, þá er það í lagi.
Endilega kíkið síðan á þennan link hér að neðan, þetta sendi konan mér í morgunsárið.
http://www.grapheine.com/bombaytv/index.php?module=see&lang=uk&code=5de23e18be0653bad090de2d3d02b045
Söngálfur giftir sig í álagafeni í BelgíuSöngfiðrildið Jónsi, söngvari Sigurrósar, gekk á dögunum í hjónaband með álagaálfaprinsessunni Álfrúni Álfsdóttur í álagafeni í Álfsskíri í landi Belga. Jónsi sem hefur verið álfur frá því hann man eftir sér var mjög ánægður með ráðahaginn er Sósi sló á þráðinn á honum nú í morgunsárið. "Við fengum okkur einn sjortara í morgundögginni, svona til þess að halda upp á þetta" vældi Jónsi í tólið eins og stunginn álfagrís svo suðaði í eyrunum á Sósa.
Arnar Grant verður Mr. IncredibleLíkamsræktargeðillskunágrannaerjutröllið Arnar Grant landaði á dögunum samningi við Disney-Pixar um að leika Mr. Incredible í næstu mynd um The Incredibles sem frumsýnd verður í sumar. Arnar sendi inn videoið af honum og Ívari Guðmundssyni hlaupandi á brókinni í fjörunni í Nauthólsvík á eftir próteinssúkkulaðistykki og hrifust menn svo af því hjá Disney að það kom víst aldrei neinn annar til greina. Hér til hliðar sjáum við Arnar geðillskuna uppmálaða í spandexgallanum sem Herra Ótrúlegan.


