Sprengja um borð!
Jæja þá eru Sósi og frú Loðmfjörð komin heim eftir vel heppnaða utanferð til Lundúnarborgar. Ef einhvern vissi það ekki, þá bauð Loðmfjörð Sósa til London í tilefni af 35 ár a afmælis Sósa, þann 23. ágúst síðastliðinn. Ferðin var að fullu greidd af Lommunni og þurfti Sósi ekki að taka upp veskið alla ferðina.
Eitt kom okkur á óvart í London! Strætisvagnabílstjórarnir eru farnir að vara fólk við ef það leynist sprengja í bílnum, með því að vera með upplýsingaflettiskylti utan á vögnunum þar sem gefið er til kynna hvort sprengja sé í vagninum eður ei. Við tókum einmitt mynd af einum slíkum vagni er hann keyrði framhjá okkur. Eini farþeginn í vagninum var sjálfsmorðssprengjumaðurinn og var honum ekki skemmt af farþegaleysinu. Yfirvöld í Lundúnum segja þetta vera skemmtilega nýjung hjá vagnsstjórunum sem þeir hafi algerlega fundið upp hjá sér sjálfum. "Það sér það hver maður í hendi sér, að það stígur enginn heilvita maður upp í vagn sem er fullur af sprengiefni. Það getur líka verið fyndið að sjá þessa hryðjuverkamenn rúntandi einir um í vagninum með engann til þess að sprengja í loft upp" sagði aðstoðarmaður borgarstjóra Hamam Hali Abizzi er við spurðum hann hver hefði fundið uppá þessu nýja verkfæri gegn hryðjuverkum í borginni, á stuttum fundi í ráðuneytinu skömmu áður en við héldum heim á leið. Annars virtist allt vera með kyrrum kjörum og hægt að gera góð kjör víða um borgina.
Sósi og Lomma fóru á indverskan stað og fengu sér að snæða í ferðinni sem er svo sem ekki í frásögur færandi, en hitt er þó færandi til bókar að Sósi fór á náðhúsið eftir matinn og skaut miklu eldvarpi svo ekki stóð steinn yfir steini þar neðra.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli