"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
fimmtudagur, febrúar 19, 2009
miðvikudagur, febrúar 11, 2009
Von Dirty felur sig í kreppunniBankaskelfirinn og fjármálakreppan Mr. Von Dirty er samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sósi.is í felum í Afghanistan. Í kjölfar bankakreppunnar sem hann einn og óstuddur hratt af stað með ótímabæru hlutabréfabrölti sínu, sá hann sér ekki lengur vært á hinu helfrosna Ísalandi og flúði land. Þessi mynd var tekin af kauða er hann hugðist kaupa sér klossa á útsölu en var síðan vísað á dyr fyrir að tala hebresku á ensku við búðarkonuna.
Svefnprófessorinn gallharður kommúnistiSvefnprófessorinn Karl Ægir Karlsson lét ekki sitt eftir liggja í mótmælunum gegn ríkisstjórninni og ný-frjálshyggjunni á dögunum. Prófessorinn lék við hvurn sinn fingur á Austurvelli og dansaði meðal annars stríðsdans á bálkestinum fyrir framan Alþingi Íslendinga pungsveittur með forláta heykvísl í hendinni. "Halim AL heim, Geir út í geim" veinaði prófessorinn út í andrúmsloftið á milli þess sem hann henti sér á bálið og baðaði sig í piparúða. Er doktorinn var spurður að því hvort hann ætlaði að bjóða sig fram til þingsetu svaraði hann "fari það í þúsund trilljón tryllta, tarfóða, tólgsadda, tannhvalsétandi, termítabitna túnfiska í Trékyllisvík, ég er ekki alger fáviti" og gaf fréttamanni einn vel útilátið kjaftshögg að hætti Þorlákshafnarbúa.
miðvikudagur, febrúar 04, 2009
Von Dirty á kreik á nýHinn elskulegi og teprulegi bissnesmaður Von Dirty, sást í fyrsta skipti opinberlega eftir bankahrunið á vappi í Rúanda á dögunum. Er Rúandískir fjölmiðlamenn fréttu af veru snáðans í landinu þustu þeir á vettvang í einu vetfangi og tóku þessa skemmtilegu mynd af kauða. Eins og sést, var Von Dirty óvenjulega hátt brókaður að þessu sinni og krafðist það frekari skýringa. Sósi sló því á þráðinn til kauða og spurði hverju sætti. "Æji ég er búin að vera eitthvað svo lausgirtur upp á síðkastið að ég ákvað að hysja upp um mig buxurnar í þeim efnum" sagði Dirty hálf skrækróma í tólið.
Ástvaldur veldur usla á eyjunni MönÞessi mynd var tekin af snúllusnúðnum Geira Ástvalds er hann var í sumarfríi á eyjunni Mön síðastliðið sumar. Ástvaldurinn spókaði sig þar um í aðsniðnum gallastuttbuxum við litla hrifningi innfæddra Manarbúa sem notuðu hvert tækifæri til þess að púa á hann og hreyta í hann ónotum. Þrátt fyrir þetta þá sagðist Ástvaldur í samtali við Sósa hafa verið sáttur við fríið og ekki erfa neitt við íbúa Manar þó svo að þeir hafi látið ýmis orð falla á Mönísku.
miðvikudagur, janúar 28, 2009
fimmtudagur, janúar 22, 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)














