föstudagur, september 28, 2007


Svei þér vor forseti!
Þessi mynd náðist af Ólafi Ragnari forseta vorum í Öskjuhlíðinni nú um helgina, þar sem hann sést á harða hlaupum undan Dorritt sem sést ekki á myndinni.
Ekki fylgir sögunni hvað í ósköpunum þau skötuhjú voru að athafast þarna í skógarþykkninu.

fimmtudagur, september 27, 2007



Óskar Hafliði borin út úr partýi í Þingholtunum

Aldin vinur Sósa, Óskar Margmiðlun Ragnarsson var samkvæmt fréttaritara Sósi.is í Þingholtunum vísað á dyr úr partýi sem hann hafði gert sér gestkvæmt um helgina. Er Sósi náði tali af húsráðendum í morgun höfðu þau þetta um málið að segja. "Það var allt með kyrrum kjörum hér þegar þessi maður birtist allt í einu hér seint um kvöld. Honum var meinaður aðgangur en hann hlustaði ekki á neitt. Hann sagðist vera með ólæknandi sjúkdóm og að hann þarfnaðist hlýju og Sjenever í kók. Við hleyptum honum því inn og gáfum honum eitt glas af Sjenna sem við hefðum náttúrulega ekki átt að gera því þá varð fjandinn laus. Hann reif sig úr öllum fötunum og tók jú djitsú stökk út um alla íbúð eins og skrattinn væri á hælunum á honum. Við svo búið var ekki annað hægt en að kalla eftir aðstoð lögreglu til að fjarlægja manninn" sagði þessi skelkaður íbúi í Þingholtunum greynilega með mikið niður um sig.


Olivier kosinn hallærislegasti Hipp Hopparinn í Frakklandi
Olivier Collaud mágur Sósa hefur upp á síðkastið verið að hasla sér völl sem Hipp Hopp skoppari í Frakklandi en ekki ennþá haft erindi sem erfiði (enda kannski ekki við því að búast). Hann mætti engu að síður á árlega verðlaunahátíð Hipp Skoppara svona just for the fun of it og gekk út af hátíðinni með verðlaun í farteskinu sem komu honum í opna skjöldu. "Ég átti nú ekki von þessu" sagði Olivier er við slógum á þráðinn til hans augljóslega gáttaður á þessari upphafningu. "
Þeir sem vilja senda Oivier heillaóskaskeyti geta sent honum línu á póstfangið olivier.collaud@blingbadabing.fr


Talandi um miðbæjarvandann!

Hvað er eiginlega að gerast þarna austurfrá?


Aldraður öryrki með stæla í miðbænum.
Sósi gekk framm á þennan partýstuðskall á rölti sínu í miðborginni fyrir nokkrum dögum. Sósa lék forvitni á að vita af hverju hann væri í svona miklu partýstuði og
hreitti því í hann eins og einni spurningu, "Hvað er aldraður öryrki eins og þú að gera í partýstuði niður í bæ um hábjartan dag?". Aldraði hjólastóls partýstuðs öryrkin svaraði þá þessu til "Nei djók" hisjaði upp um sig buxurnar og labbaði í burtu. Hann var þá bara að djóka helv.. kallinn.




Oktoberfest rétt handan við hornið!

Sósi minnir alla Íslendinga sem og útlendinga á októberfest sem haldið verður uppá með poppi og lax næstkomandi október.

Myndin til hliðar var tekin á októberfest heima hjá Sósa síðastliðinn október sem var fyrir rétt rúmu ári síðan. Á henni sést Lommuvitleysingurinn jafnhatta 8 krúsum af Kneifaröli handa Sósa sínum og fer létt með.

Lengi lifi Lomman, októberfest og Kneifaröl, hipp hipp sjúrei og sjúddirarirey!

Hreindýr í Kaupmannahöfn

Sósa var rétt í þessu að berast þessi mynd frá Frikka Winesnitchel frá Kóngsins Köbenhavn. Samkvæmt hr. Winesnitchel þá málaðu Lommukvikindið ásamt fríðu föruneyti "Sex and the City" systra og Brynju hans Gunna, bæin rauðan með allskyns uppákomum sem Sósa hefur greinilega ekki borist til eyrna fyrr en nú. Þær mættu víst í eitt flottasta partý bæjarins uppáklæddar sem hreindýr og veinuðu á karlpeningin í gríð og erg "viljiði koma á bak" og hlógu síðan alveg svakalega svo undirtók í fjöllunum. Ekki fer sögum af því hvort að einhver fór á bak, en við látum það nú liggja á milli fóta.









Loðmfjarðarsystur fá sér nýtt á rúmin

Litla- og stóra Lomma fóru ásamt Siggu vinkonu litlu Lommu í smá verslunarleiðangur um liðna helgi sem er svo sem ekki í smákökur færandi. Þær höfðu hug á að kaupa sér "nýtt á rúmin" eins og þessar kellingar segja oft þegar tími er komin til að skipta um rúmföt. Sigga greyið var kviðslitinn að þessu sinni og þurfti því að sinna erindum sínum úr hjólastól sem þær systur skiptust á að ýta fram og tilbaka um Smáralindina. Þessi mynd var tekin af þeim er þær voru á leiðinni heim úr verslunarleiðangrinum með "nýtt á rúmin" í poka, en athygli vekur að þær stöllur hafa dregið þá ályktun að það væri meiri vigt í rúmfötunum en Siggu (Siggi búin að vera á danska kúrnum), og tóku því kellingar hróið á stráhest og ýttu rúmfötunum um í hjólastólnum vegfarendum til mikillar skemmtunar.

Meira ruglið alltaf hreint í þessum kellingum!

miðvikudagur, september 26, 2007



Jarðafaradólgur!

Samkvæmt upplýsingum sem strákarnir á Sósi.is fengu nú í morgun virðist sem svo að Elías Sprelías kunningi Sósa til margra ára sé orðinn jarðafaradólgur. Samkvæmt skilgreiningu Orðabókar Háskóla Íslands þá er orðið "jarðafaradólgur", sá/sú sem er með dólgslæti og fíflagang í jarðaförum sem hann/hún á ekkert erindi í.

Þessa mynd fékk Sósi senda í morgun frá ónafngreindum aðila sem sagðist hafa verið í jarðaför þar sem þessi viðbjóðslegi maður hafi verið með alls kyns grín og uppistand öllum syrgjendum til mikillar armæðu. "Þessi maður bara birtist allt í einu út úr myrkrinu og byrjaði að góla eitthvað á sænsku og láta öllum illum látum. Hann tróð einnig nokkrum Extra tyggjóstykkjum upp í sig og þóttist vera Eiríkur Fjalar, en fórst það ekki vel úr hendi miðað við viðbrögð viðstaddra" sagði ónafngreindi maðurinn sem alls ekki vildi koma fram undir nafni af ótta við hefndaraðgerðir jarðafaradólgsins. Er Sósi sló á þráðinn til Elíasar nú í morgunsárið vildi hann endilega kannast við málið og sagði "Ég var bara að djóka"

mánudagur, september 24, 2007



Stefanía Ósk 17 ára í dag!

Stella Stuð er 17 ára í dag og langar okkur hér á Sósi.is að óska henni hjartanlega til hamingju með afmælið.