Segir allt sem segja þarf
"You can live to be a hundred if you give up all the things that make you want to live to be a hundred"
föstudagur, janúar 09, 2009
fimmtudagur, janúar 08, 2009
Amy Winehouse aftur komin í ruglið!Sósi hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að brugghúsið Amy Winehouse sé aftur dottin í það. "Hún var búin að vera edrú kellingin heila helgi en fann svo Camel Filters pakka í eldhússkúffunni hjá mér og því fór sem fór" sagði móðir hennar Swansea Simmons er Sósi sló á þráðinn til hennar í hádeginu. Mamma hennar sendi Sósa þessa mynd af Amy þar sem hún tottar makindalega filterslausa Camelskítarettu með nefinu. Amy vildi ekki koma í viðtal en veinaði engu að síður í tólið "maður fær ekki einu sinni frið fyrir alheimsnetsbloggurum" svo undirtók í ruglinu.
föstudagur, desember 12, 2008
miðvikudagur, desember 10, 2008
miðvikudagur, nóvember 26, 2008
Seðlahrunsstjóri með nýtt gæludýrSeðlahrunsstjóri vor sem hefur verið þekktur fyrir það að vera mikill dýravinur hefur fengið sér nýtt gæludýr. Dýrið er frekar ófrýnilegt að sjá og geðslag þess er víst eins og hjá versta múrara. Dýrið fékk hann í gjöf frá vini sínum Styrmi Gunnarssyni sem hefur átt það í áraraðir. Seðlahrunsstjóri er víst mjög ánægður með kvikindið og lætur það sinna ýmsum skítverkum í skjóli nætur. "Ég nota kvikindið í dittinn og dattinn, það er næstum því hægt að nota þessa skaðræðisskepnu í allt" sagði Seðlahrunsstjóri og hló dátt svo undirtók í tómum geyminum.
miðvikudagur, nóvember 19, 2008
fimmtudagur, nóvember 13, 2008
miðvikudagur, nóvember 12, 2008
Von Dörí á leið á árshátíðSósa voru rétt í þessa að berast þær skelfilegu fréttir að fyrrverandi viðskiptamógullinn Elías Von Dörí væri á leið á árshátíð um helgina. Eins og flestum rennur ferskt vatn í skinni þá hagnaðist Von Dörí gríðarlega á útferðini svokallaðri sem nú hefur runnið sitt skeið á enda með skelfilegum afleiðingun fyrir okkur hin. Von Döri var frægur að endemum þegar hann keypti sér forljót jakkaföt á 50 milljónir evra sumarið 2006 þegar útferðin var í hámarki. En en eins og allir vita þá þorna útferðin upp og Von Döri sömuleiðis en hann hélt alltaf jakkafötunum góðu og það er það sem Sósi hefur miklar áhyggjur af. Ef Sósi þekkir Von Dörí rétt þá á hann eftir að mæta í þessum sömu fötum og gera allt vitlaust á árshátíðinni eins og honum einum er lagið. Sósi er þó að vona að hann skilja þá laufbrúnu eftir heima, því ef hann gerir það ekki má búast við óeirðum og að fólk geti ekki tekið ábyrgð á gjörðum sínum í þeirra viðurvist.
Þessi mynd var tekin af Von Dörí í jakkafötunum þegar útferðin stóð sem hæst, bjargi sér hver sem betur getur!

38 ára gamall maður svikinn af BT
Davíð Vignir Magnússon, 28 ára gamall maður úr Hafnarfirði, hafði beðið í fimm mánuði eftir að fá nýja PSP leikjatölvu frá BT í stað gallaðrar, þegar BT var tekið til gjaldþrotaskipta.
Á föstudegi fyrir hálfri annarri viku, tókst móður Davíðs, að semja um endurgreiðslu þar sem sýnt var að ný tölva væri ekki væntanleg. Henni var sagt að þau þyrftu aðeins að skila snúru sem fylgt hafði tölvunni, svo hægt væri að endurgreiða vélina. Þegar þau hugðust ganga frá málinu á mánudeginum hafði BT verið lokað og óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
Sirrý mamma Davíðs segir að sonur sinn hafi í heilt ár átt þó óska heitasta að eignast PSP tölvu, eins og flestir félagar hans eiga. „En þar sem ég er einstök þriggja barna móðir átti ég ekki möguleika á að verða við því þó ég hefði svo sannarlega viljað,“ segir Sirrý.
En Davíð dó ekki ráðalaus. Hann hófst handa við að safna sér fyrir tölvunni sjálfur. „Í heilt ár lagði hann til hliðar afmælis- og vasapeninga og safnaði flöskum sem hann seldi,“ segir Sirrý en bætir því við að tölvan hafi verið dýr og þess vegna hafi meira þurft til. „Hann brá þá á það ráð, þar sem hann er einkar drátthagur, að teikna myndir og bjóða til sölu. Dögum saman þrammaði hann götu úr götu með möppuna sína og seldi, sama hvernig viðraði,“ segir Sirrý.
Loks rann upp sá dagur að Róbert átti fyrir tölvunni. Þau mæðginin fóru í BT í kringlunni þar sem Davíð lagði stoltur fram aurana sína og fékk tölvuna afhenta. „En gleðin var skammvin þar sem tölvan reyndist gölluð. Henni var skilað og sagt að von væri á nýrri sendingu af tölvum innan skamms,“ segir Sirrý en sú bið varð fljótlega að vikum og mánuðum. „Alltaf var okkur sagt að tölvurnar væru við það að koma til landsins,“ segir hún.
Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri BT sagði í samtali við Sósa.is að eini möguleikinn fyrir Davíð og þá sem kunna að eiga eitthvað inni hjá BT sé að gera kröfu í þrotabúið. Það sé hins vegar afar hæpið að hann fái tölvuna endurgreidda, nema hugsanlega að hluta. „Hann fær þetta líklega aldrei,“ segir Helgi.
mánudagur, nóvember 10, 2008
fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Geðillskan uppmáluð
Snælduvitlaus karlmaður á fimmtugsaldri sem heitir Pétur, hafði samband við Sósa símleiðis í gærkveldi greinilega viti sínu fjær af áhyggjum af ástandinu í þjóðfélaginu. "Þetta gengur bara ekki mikið lengur Sósi, ha finnst þér það Sósi. Við erum alveg fokked, ég meina það gjörsamleg fokked" sagði Pétur í tólið með titrandi röddu. Sósi reyndi að róa kallinn með því að segja honum að það stytti upp um síðir en það virkaði bara sem olía á eldinn. Pétur þessi gjörsamlega trompaðist og æðubunaði fullt af orðum út úr sér sem Sósi hefur aldrei heyrt áður og verða ekki birt hér. "Ég skal nú barasta segja þér það vinur, ég er búin að fá mig fullsaddann á aðgerðarleysi stjórnvalda og ætla því að grípa sjálfur til aðgerða. Ég ætla að mótmæla þessu ástandi og það mun enginn stoppa mig hvorki þú né nokkur annar" sagði Pétur að lokum hoppandi geðvondur, úrill og gráhærður. Þessari mynd náði Sósi af Pétri er hann mótmælti ástandinu einn og óstuddur fyrir framan höfuðstöðvar Kexverksmiðjunnar Frón nú í hádeginu ,Sósa og öðrum vegfarendum til mikillar undrunar.
Sósi óskar öllum jarðarbúum til hamingju!Það hefur ekki farið mikið fyrir því í fjölmiðlum að nýr forseti var kosinn í Bandaríkjunum í vikunni. Sá sem varð fyrir valinu að þessu sinn er karlmaður á fimmtugsaldri af blökkumannakynslóðinni svokölluðu þ.e.a.s. Jessi Jackson, Richard Pryor og þeir allir. Maðurinn heitir bara Obama (eins og það sé ekki nóg) og gefur víst af sér afar góðan þokka en þónokkurn óþef sem er víst frekar leiðigjarnt á löngum fundum. Obama sagði við Sósa er Sósi sló á þráðinn að nú væri Runnatímabilinu seinna lokið og við tæki uppbygging og uppgjör við Runnatímabilið sem gæti tekið sinn tíma.
Obama vildi koma því til skila til Íslands að hann myndi glaður lána Íslendingum péning ef þess væri óskað og myndi meira að segja skrifa persónulega tékka fyrir öllu klabbinu (geri aðrir betur).
Hér til hliðar má sjá Obama er honum voru tilkynnt úrslitin, vígreifur og hamingjusamur með lókinn upp í loftið eins og sönnum blökkumanni sæmir.
þriðjudagur, nóvember 04, 2008
föstudagur, október 31, 2008
Satan Al til bjargarHinn skeleggi og undarlegi strokupési Satan Al, hefur nú stigið fram á sjónarsviðið í íslenskum fjölmiðlum og heitið því að hann muni ekki skorast undan því ef íslenska þjóðin leyti til hans í þeim hremmingum sem yfir hana gengur. Satan segist þó ekki vera efnaður maður en geti hjálpað Íslendingum á annan hátt. Þegar Sósi setti sig í samband við kallinn til þess að krefja hann svara um hvers konar aðstoð hann ætti við, þá svaraði hann "ég djóka Sósi, ég djóka bara mar, kann ekki íslanding a djóka" svo undirtók í þríforknum, púkunum og viðbjóðnum.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)












