Sýnir færslur raðaðar eftir vægi með efnisorðinu Seðlabunkastjóri. Raða eftir dagsetningu Sýna allar færslur
Sýnir færslur raðaðar eftir vægi með efnisorðinu Seðlabunkastjóri. Raða eftir dagsetningu Sýna allar færslur

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Seðlabunkastjóri búinn að fá nóg




Davíð Oddsson Seðlabunkastjóri brýnir fyrir fólki að láta nú af allri óþarfa eyðsluneyslu og þreyja Þorrann ella hljóta verra af. Davíð sagði í stuttu spjalli við Sósa að ástandið í þjóðfélaginu væri allsendis óviðunandi og að hann ætlaði sér einn og óstuddur að berja niður með harðræði ef þyrfti, allt spenderí (eins og hann orðaði það), í eitt skipti fyrir öll.


"Það eru margir orðnir ansi vambmiklir í þessu þjóðfélagi og það verður ekki liðið á meðan ég ríð hér músum" sagði Davíð hnikklaði bumbuna, glotti við tönn og skellti á eftir sér hurðinni í peningageyminum svo undirtók í þjóðfélaginu.